Karen í hóp þeirra fimm markahæstu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2016 07:00 Karen Knútsdóttir hefur skorað 277 mörk fyrir A-lið Íslands. Fréttablaðið/Valli
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Sviss á morgun í Schenker-höllinni á Ásvöllum en íslensku stelpurnar töpuðu með minnsta mun úti í Sviss á fimmtudagskvöldið og eru enn að bíða eftir sínum fyrsta sigri í undankeppni EM 2016. Íslenska liðið hefur nýtt sér heimavöllinn vel í undankeppnunum undanfarin ár og það er svo sannarlega kominn tími á sigur. Karen Knútsdóttir, fyrirliði íslenska liðsins, skoraði sex mörk í tapleiknum úti í Sviss og náði með því að komast í hóp fimm markahæstu landsliðskvenna Íslands frá upphafi. Karen hefur nú skorað 277 mörk fyrir A-landsliðið og komst upp fyrir þær Dagnýju Skúladóttur (274) og Höllu Maríu Helgadóttur (273) á fimmtudagskvöldið. Karen vantar nú þrettán mörk til að verða fjórða íslenska konan sem nær að skora þrjú hundruð landsliðsmörk en það enn langur vegur fyrir hana að jafna markamet Hrafnhildar Skúladóttur. Hrafnhildur hefur enn 343 marka forskot. Karen þarf því að spila í mörg ár í viðbót til að ógna meti Hrafnhildar en ætti að eiga góða möguleika á því að komast yfir 300 marka múrinn í þessari undankeppni. Íslenska liðið á eftir þrjá leiki, leikinn á morgun og svo tvo leiki í júnímánuði. Íslensku stelpurnar verða að vinna Sviss í dag til þess að eiga möguleika á þriðja sætinu en tap myndi þýða að þær enduðu í neðsta sæti riðilsins. Leikur Íslands og Sviss hefst klukkan 16.30 á Ásvöllum í Hafnarfriði á morgun.
Íslenski handboltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira