Körfubolti

Elvar bætti skólamet Barry í stoðsendingum um heil tuttugu prósent

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elvar Már Friðriksson.
Elvar Már Friðriksson. Mynd/Heimasíða Barry
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hefur lokið sínu fyrsta tímabili með Barry-háskólanum í bandaríska háskólakörfuboltanum en Elvar Már og félagar urðu að sætta sig við að detta út úr átta liða úrslitum úrslitakeppninnar.

Elvar hætti í LIU Brooklyn skólanum eftir síðasta vetur og skipti yfir í Barry sem spilar í 2. deild háskólaboltans í Bandaríkjunum. Það er óhætt að segja að íslenski leikstjórnandinn hafi endurskrifað metabók skólans þegar kemur að því að spila liðsfélagana uppi.

Elvar gaf nefnilega alls 267 stoðsendingar í 33 leikjum Barry á tímabilinu eða 8,1 að meðaltali í leik. Hann var einnig með 10,8 stig og 1,6 stolinn bolta í leik.

Elvar var fyrir löngu búinn að setja nýtt skólamet í stoðsendingum þegar kom að þessum síðustu leikjum í úrslitakeppninni. Elvar bætti metið á endanum um heilar 46 stoðsendingar eða um rúmlega tuttugu prósent. Hann var aðeins annar leikmaðurinn sem nær því að gefa tvö hundruð stoðsendingar á einu tímabili.

Elvar Már er einnig fyrsti leikmaðurinn í sögu Barry-skólans til að gefa yfir átta stoðsendingar að meðaltali í leik á einu tímabili.

Elvar gaf mest 14 stoðsendingar í einum leik en hann gaf tíu stoðsendingar eða meira í tólf leikjum og var með fimm stoðsendingar eða meira í 29 af 33 leikjum tímabilsins.



Flestar stoðsendingar á einu tímabili í sögu Barry-háskólans:

1. 267 Elvar Már FRIÐRIKSSON - 2015-16

2. 221 Deric HILL - 2014-15

3. 215 Deric HILL - 2013-14

4. 168 Nelson FONSECA - 1993-94

5. 163 Ryan SAUNDERS - 2005-06

6. 162 Ryan SAUNDERS - 2004-05

7. 151 Michael ANDERSON - 1991-92

8. 135 Nelson FONSECA - 1992-93

9. 132 Jason Junker - 2000-01

10. 128 Ryan SAUNDERS - 2003-04

Flestar stoðsendingar að meðaltali í leik á einu tímabili í sögu Barry-háskólans:

1. 8.1 Elvar Már FRIÐRIKSSON (33 leikir) - 2015-16

2. 7.7 Deric HILL (28 leikir) - 2013-14

3. 7.4 Deric HILL (30 leikir) - 2014-15

4. 6.2 Nelson FONSECA (27 leikir) - 1993-94

5. 6.1 Nelson FONSECA (22 leikir) - 1992-93

6. 5.4 Ryan SAUNDERS (30 leikir) - 2005-06

7. 5.1 Ryan SAUNDERS (32 leikir) - 2004-05

8. 5.0 Michael ANDERSON (30 leikir) - 1991-92

9. 4.6 Ryan SAUNDERS (28 leikir) - 2003-04

10. 4.6 Jason Junker (29 leikir) - 2000-01




Fleiri fréttir

Sjá meira


×