Samsæri RÚV gegn Framsóknarflokknum
Síðastur til að stíga fram á sviðið í dag er Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem vænir Ríkisútvarpið um samsæri gegn flokki sínum í pistli sem hann birti á bloggi sínu áðan og heitir „Óvinur nr. 1“. Samsærið felst í því að frétta- og dagskrármenn RÚV virðast hafa valið viðmælendur sem eru yfirlýstir andstæðingar Framsóknarflokksins. Og svo rekur Karl dæmi um þetta í því sem hann kallar „herferð gegn forsætisráðherra“ undanfarna viku.
Tilefnið eru fréttir af því að kona Sigmundar Davíðs, Anna Sigurlaug Pálsdóttir eigi fúlgur fjár á reikningi á Bresku Jómfrúreyjunum og að hún sé ein kröfuhafa – hún setti fram kröfu á hendur íslensku bönkunum sem nemur hálfum milljarði í kjölfar hruns fjármálakerfisins árið 2008. Sigmundur Davíð hefur verið gagnrýndur ákaft fyrir að hafa ekki greint frá þessu fyrr en nú auk þess sem hann er vændur um að vilja ekki treysta íslensku krónunni, sem hann hefur lofað svo mjög, né íslensku efnahagslífi með því að vilja sjálfur hafa sitt inni á erlendum reikningum.
Sigmundur reið sjálfur á vaðið
Þessi gagnrýni hefur lagst ákaflega illa í Framsóknarmenn. Sigmundur Davíð reið sjálfur á vaðið í pistli á föstudag og leggur málið upp. Hann túlkar gagnrýnina sem árás á maka sinn:
„Stjórnmálaátök samtímans einkennast oft af því að „farið sé í manninn“ fremur en málefnið. Mér er nokkuð sama hvernig hjólað er í mig. Ég er ýmsu vanur í pólitískri umræðu. En menn hljóta að geta fallist á að það sé með öllu ólíðandi að ráðist sé á ættingja eða maka stjórnmálamanna til þess eins að koma á þá höggi. Frá því að ég hóf þátttöku í stjórnmálum hafa engu að síður verið gerðar margar tilraunir til að gera eignir eiginkonu minnar og ættingja tortryggilegar í von um að með því megi koma höggi á mig.“

Lægstu hvatir mannkyns
Ákafir stuðningsmenn hans hafa svo hellt úr skálum reiði sinnar í dag og sveiflast milli þess að lofa Sigmund Davíð sem einstakan afreksmann og svo þess að hella sér yfir meinta fjandmenn sína.
Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vandar meintum fjendum Framsóknarflokksins ekki kveðjurnar í miklum reiðilestri:
„En hælbítarnir gefast ekki upp enda eru pólísk samtök þeirra við það að þurrkast út. Það ætti ekki að koma neinum á óvart sem fylgst hefur með framgöngu þeirra undanfarin ár.“

Þögn Sjálfstæðismanna ærandi
Og Birkir Jón Jónsson bæjarfulltrúi og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins talar um atgervi Sigmundar Davíðs í pistli sem Vísir birti í dag. „Ef hans framsýni og eindrægni í því að heimta fjármuni af kröfuhöfum föllnu bankanna hefði ekki notið við þá væri íslenska þjóðarbúið í vondum málum í dag. Það að reyna að gera forsætisráðherra ótrúverðugan í þessu máli er ekki stórmannlegt. Nær væri að þakka Sigmundi Davíð fyrir vel unnið verk.“
Hins vegar hefur þögn þingmanna Sjálfstæðisflokksins verið ærandi í dag. Þeir hafa gætt þess vel að tjá sig ekkert um málið og hefur verið erfitt að ná tali af þeim í allan dag. Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins tjáði sig um málið um helgina, og gagnrýndi þá Sigmund Davíð en opinber stuðningur í þeim málflutningi, af hálfu samstarfsflokks Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokknum, virðist ekki í boði.