Hræddur um að Klopp fái stuðningsmenn Dortmund á sitt band Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. apríl 2016 11:30 Jürgen Klopp er dýrkaður og dáður á Anfield og Westfalen. vísir/getty
Hans-Joachim Watzke, hinn málglaði framkvæmdastjóri Dortmund, hefur áhyggjur að Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, muni hafa áhrif á stemninguna á Westfalen-vellinum á fimmtudaginn þegar Dortmund og Liverpool mætast í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Klopp er goðsögn í lifanda lífi hjá stuðningsmönnum Dortmund eftir að vinna þýsku deildina tvö ár í röð, bikarinn einu sinni og komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á þeim sjö árum sem hann stýrði liðinu. Dortmund treystir mikið á heimavöllinn en liðið á einhverja bestu stuðningsmenn Evrópu og er stemningin á hverjum einasta leik nánast engu lík. „Mest af öllu hræðist ég að Klopp muni sefa alla og láta alla halda að þeir þurfi ekkert að óttast. Ég óttast líka að hann reyni að fá okkar stuðningsmenn á sitt band þannig leikurinn verði eins og vináttuleikur,“ segir Watzke í viðtali við Guardian. Dortmund er mjög sigurstranglegt í Evrópudeildinni en Thomas Tuchel, þjálfari liðsins, er að gera frábæra hluti með liðið sem er í öðru sæti þýsku deildarinnar á eftir Bayern München og fór létt með Tottenham í 16 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. „Ég vil að okkar stuðningsmenn sýni Jürgen virðingu eftir leikinn en ekki fyrir hann og ekki á meðan honum stendur. Við verðum að standa saman til að vinna lið eins og Liverpool,“ segir Thomas Tuchel.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Sjá meira