Fínasta grillveður á morgun: Hiti gæti náð allt að 17 stigum Birgir Olgeirsson skrifar 13. maí 2016 11:06 Staðarspá Veðurstofu Íslands fyrir annað kvöld.
Landsmenn eiga að geta dregið fram grillin annað kvöld tiltölulega lausir við áhyggjur af því að dropar muni falla af himni. Reikna má með að allir helstu grillmeistarar landsins muni leika listir sínar annað kvöld áður en flautað verður til leik í úrslitum söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision. Samkvæmt Veðurstofu Íslands er útlit fyrir fínasta veður um helgina með rólegum vindi. Yfirleitt vestlæg átt eða hafgola. Vestan til á landinu verður að mestu skýjað en yfirleitt þurrt, en í öðrum landshlutum má gera ráð fyrir að sólin nái eitthvað að skína, einkum suðaustanlands. Milt í veðri og hiti allt að sautján stig suðaustanlands.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á morgun: Vestlæg átt 3-10 m/s, en bætir í vind NV-til á morgun. Skýjað og úrkomulítið um landið V-vert. Skýjað með köflum eða bjartviðri í öðrum landshlutum. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast SA-lands.Á sunnudag:Vestlæg átt, 3-10 m/s, en suðvestan 8-15 NV-til. Víða bjartviðri, en skýjað að mestu V-lands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á SA-landi.Á mánudag:Snýst í norðaustanátt með rigningu, en dálítilli slyddu eða snjókomu fyrir norðan. Hiti 3 til 9 stig, en um frostmark fyrir norðan.Á þriðjudag:Austlæg átt, skýjað með köflum og hiti 0 til 4 stig, en bjart um landið V-vert og hiti 4 til 9 stig.Á miðvikudag:Breytileg átt og bjart með köflum. Hiti 4 til 9 stig.Á fimmtudag:Útlit fyrir suðaustlæga átt með vætu S-til, en léttskýjað norðanlands. Heldur hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Fleiri fréttir Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum Sjá meira