„Hana vantar örugglega eitthvað í sjóðinn til að ferðast“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. maí 2016 08:30 Mál Þorvaldar er fyrir aganefnd. mynd/skjáskot
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Keflavíkur, neitar því að hafa eitthvað gert af sér þegar hann virtist hafa slegið Reyni Leósson, þjálfara HK, í punginn eftir leik liðanna í fyrstu umferð Inkasso-deildarinnar í fótbolta. Þorvaldur greip um Reyni eftir 1-1 jafntefli liðanna í Kórnum í byrjun mánaðar og sló Reyni í punginn en Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, sendi málið fyrir borð aganefndar í síðustu viku. Ekkert var gert í málinu fyrst um sinn. Það var ekki fyrr en Klara ákvað að vísa hálstaki Hermanns Hreiðarssonar, þjálfara Fylkis, fyrir aganefnd að mál Þorvaldar flaut með.Aðspurður um ákvörðun Klöru í viðtali á Fótbolti.net í gærkvöldi eftir bikartap Keflavíkur gegn Fylki sagði Þorvaldur: „Það er bara hennar ákvörðun. Hana vantar örugglega eitthvað í sjóðinn til að ferðast erlendis. Þetta er búið og gert. Það er ekkert meira um það að segja.“ Þegar gengið var á Þorvald og hann spurður hvort hann hefði gert eitthvað af sér svaraði hann: „Nei, nei, nei. Þetta er búið og gert.“ Aganefnd KSÍ virðist vera sammála Þorvaldi að hluta. Hún kom saman á þriðjudaginn og ákvað þar að senda Þorvald ekki í leikbann og ekki heldur Hermann Hreiðarsson. Keflavík og Fylkir voru þó bæði sektuð um 75.000 krónur fyrir framkomu þjálfaranna.
Íslenski boltinn Tengdar fréttir Stjórnarmaður Fylkis: Hermann er skotspónn fjölmiðla Fylkir mun ekkert aðhafast frekar í máli þjálfara liðsins, Hermanns Hreiðarssonar, sem tók stjórnarmann ÍBV hálstaki eftir leik liðanna í 4. umferð Pepsi-deildar karla á mánudaginn. 19. maí 2016 08:15 Málum Hermanns og Þorvaldar vísað til aganefndar Framkvæmdastjóri KSÍ ákvað að setja bæði mál á borð aganefndar sambandsins. 19. maí 2016 20:21 Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Sjá meira
Stjórnarmaður Fylkis: Hermann er skotspónn fjölmiðla Fylkir mun ekkert aðhafast frekar í máli þjálfara liðsins, Hermanns Hreiðarssonar, sem tók stjórnarmann ÍBV hálstaki eftir leik liðanna í 4. umferð Pepsi-deildar karla á mánudaginn. 19. maí 2016 08:15
Málum Hermanns og Þorvaldar vísað til aganefndar Framkvæmdastjóri KSÍ ákvað að setja bæði mál á borð aganefndar sambandsins. 19. maí 2016 20:21