Ofurdýravinur smyglar sér inn í hóp skotveiðimanna á Facebook Jakob Bjarnar skrifar 6. júní 2016 07:40 Talsvert uppnám ríkir nú meðal skotveiðimanna á Facebook eftir að Árna Stefáni tókst, líkast til fyrir misgáning umsjónarmanna, að komast í hópinn.
Segja má að minkurinn hafi komist inní hænsnakofann þegar dýralögfræðingurinn Árni Stefán Árnason náði að lauma sér inn í hóp skotveiðimanna á Facebook. Þar ríkir nú fár og fiðrið út um allt. Talsvert uppnám er nú meðal skotveiðimanna, þeirra sem halda hópinn á Facebook í grúbbu sem kallast Skotveiðispjallið.Einhverjir ráku upp stór augu þegar þessa umsókn mátti sjá í tilkynningakerfi Facebook.Það er veiðivefurinn Gripdeild sem greinir frá þessu nú í morgun. Árni Stefán, sem kunnur er fyrir að vera svo mikill dýravinur að þar stendur bókstaflega ekkert í vegi, sótti um inngöngu og var samþykktur. Líkast til hefur það verið í ógáti því Árni Stefán er ekki í hávegum hafður meðal veiðimanna og er þá vægt til orða tekið. Enda hefur hann farið offari í þeim efnum, er óhætt að segja. Menn ræða nú þessa vá inni á spjallinu og er vitnað til orða sem Árni lét falla einhverju sinni á netinu og eru býsna beinskeytt, ef nota má það orð yfir eftirfarandi: „Heimilt er að skjóta dýr en ekki menn. Hví? Lukkulega er ekkert í lögum sem bannar dýrum að skjóta menn og því er það ekki refsivert. Gott væri að dýr skytu menn eða stönguðu þá til dauða og hefðu fullan rétt til þess. Ég nýt þess að sjá naut meiða banann, helst drepa hann. Ég hef litla samúð með sjómönnum sem falla útbyrðis af augljósum ástæðum. Ég hef enga samúð með rjúpnaskyttum sem drepast.“Skotveiðimenn bókstaflega súpa nú hveljur, að maður sem talaði með svo afgerandi hætti um veiðar, sé nú kominn í hóp þeirra.Þá hefur Árni Stefán tjáð sig með afgerandi hætti um sársaukaskyn fiska, líkt og Vísir greindi frá á sínum tíma: „Línuveiðar eru pyntingar í sinni tærustu mynd.“ Segja má að Árni Stefán sé kominn í feitt því inni á Skotveiðispjallinu tala menn frjálslega um hvað eina sem snýr að skotveiðum, og þar má til að mynda finna myndbönd sem ekki eru fyrir viðkvæma; til að mynda þegar minkahundar eru að störfum. Gera má ráð fyrir því að lögmaðurinn sé nú að safna gögnum, en hvað hann vill gera með þau verður að koma í ljós.
Mest lesið Vikuveiðin í Veiðivötnum 1.906 fiskar Veiði Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Veiði Góð veiði í vötnum fyrir norðan um helgina Veiði Mikið af vænum fiski veiðist í Elliðavatni Veiði Haustfagnaður SVFR haldinn 19. október Veiði Besti tíminn framundan í Stóru Laxá Veiði 22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Veiði 400 Urriðar á land í Laxá í köldu veðri Veiði Það þarf að koma flugunni niður í miklu vatni Veiði Sumarið gert upp í Víðidalsá Veiði