
Kaffihús og veitingastaðir úti í hinum stóra heimi hafa nýtt sér þennan möguleika. Sé pokéstop nálægt þeim hafa mörg þeirra keypt agn á stoppið. Þjálfarar geta þá setið á kaffihúsinu og fangað pokémona án þess að vera á flakki um allt.
Kostnaðurinn við slíkt er hlægilega lítill en reiknað hefur verið út að það myndi kosta veitingastað 1,17 dollara á klukkustund að hafa agn fyrir framan staðinn sinn í heilan dag. Það er andvirði rétt rúmlega 140 króna á klukkustund.
Eigandi smás pítsastaðar í New York merkti 75 prósenta aukningu á viðskiptum við sig eftir að staðurinn hóf að kaupa tálbeitu fyrir framan staðinn sinn. „Ofboðslega margt fólk hefur komið vegna þessa,“ sagði eigandi staðarins í samtali við New York Post.
Í viðtali við Financial Times sagði John Hanke, forstjóri Niantic, að svo gæti farið að fólk geti látið bæta við pokéstoppum í nágrenni sínu gegn vægu gjaldi.
Why your restaurant should consider setting up a #PokemonGO lure system / IRL trap — it's only $1.17 per hour. pic.twitter.com/0UaN32i2xm
— Sebastian Fung (@sebfung) July 11, 2016