Facebook heldur áfram stríði síni gegn svokölluðum clickbait fyrirsögnum, eða smellubrellum, sem ýmsir miðlar notfæra sér til að auka lesningu. Nýtt reiknilíkan á fréttaveitu Facebook á að sía út villandi og ýktar fyrirsagnir á sama hátt og tölvupóstar sía út ruslpóst til að koma í veg fyrir að svindlað sé á notendum.
Í bloggfærslu Facebook frá í gær, kemur fram að dregið verði úr sýnileika fyrisagna sem halda aftur af upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að skilja hvert innihald greinarinnar eða ýkja greinina til að villa fyrir lesendum.
Þessar breytingar eru önnur tilraun samfélagsmiðilsins til að takast á við hina óvinsælu, en árangursríku tækni sem ýmsir miðlar hafa nýtt sér. Í ágúst 2014 tilkynnti Facebook breytingar á fréttaveitunni sem tóku mið af því hve miklum tíma notendur eyddu við að skoða greinar.
„Ef notendur ýta á hlekk og koma svo strax aftur inn á Facebook, gefur það til kynna að þeir hafi ekki fundið það sem þeir leituð að,“ sagði talsmaður fyrirtækisins þá. Nýju breytingarnar taka hins vegar frekar mið af hegðun miðla, en ekki notenda.
Smelludólgum verður refsað
Facebook greindi tugþúsundi fyrirsagna, og skilgreindu þær sem smellubrellur sem héldu aftur af mikilvægum upplýsingum og þeim sem voru ýktar til að villa fyrir lesendum. Þeim miðlum sem notast við slíkar aðferðir hvað eftir annað verður refsað með minni dreifingu á fréttaveitum. Ef miðlar hætta að notast við slíkt þurfa þeir ekki að taka neinum afleiðingum.
Margir miðlar stóla á samfélagsmiðilinn til að koma fréttum sínum á framfæri, svo að nokkuð ljóst er að einhverjir vefmiðlar muni taka stakkaskiptum á næstunni.
Facebook bannar smellubrellur
Hulda Hólmkelsdóttir skrifar

Mest lesið

Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin
Viðskipti erlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð
Viðskipti innlent

Að segja upp án þess að brenna brýr
Atvinnulíf

Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er
Viðskipti erlent

Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina
Neytendur

Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað
Viðskipti erlent


Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi
Viðskipti innlent

Bretar fyrstir til að semja við Trump
Viðskipti erlent