Íslenski boltinn

Bið KA-manna loksins á enda | Pepsi-deildin bíður

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
KA-menn hafa unnið síðustu þrjá leiki sína.
KA-menn hafa unnið síðustu þrjá leiki sína. vísir/stefán
Tólf ára bið KA-manna lauk loks í dag þegar liðið tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni með 1-0 sigri á Selfossi.

Ásgeir Sigurgeirsson skoraði eina mark leiksins á 78. mínútu eftir sendingu frá Hallgrími Mar Steingrímssyni.

Mikill fögnuður braust út þegar Helgi Mikael Jónasson flautaði leikinn af á Akureyrarvelli í dag enda eru KA-menn búnir að bíða lengi eftir því að komast upp úr 1. deildinni.

KA er nú komið með 42 stig og fer upp í Pepsi-deildina ásamt Grindavík sem vann Fjarðabyggð fyrr í dag.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×