Samsung, stærsti snjallsímaframleiðandi, heims hefur innkallað um 2,5 milljónir Note 7 snjallsíma, einungis tveimur vikum eftir útgáfu þeirra. Símarnir hafa sprungið í tugatali og kviknað hefur í þeim þegar þeir hafa verið settir í hleðslu.
Fyrirtækið segir vandamálið vera til komið vegna framleiðslugalla í rafhlöðum símanna og neytendastofa Bandaríkjanna hefur hvatt fólk til að hætta að nota þá.
Bráðabirgðalausn Samsung í Suður-Kóreu er að gefa út hugbúnaðaruppfærslu sem kemur í veg fyrir að hægt sé að hlaða símana að fullu. Ekki hefur verið ákveðið hvort að sú lausn verði reynd í fleiri löndum.
Samkvæmt Samsung munu nýir símar, sem ekki eru líklegir til að springa, birtast á mörkuðum í Suður-Kóreu þann 19. september. Síminn hafði þó farið á markað í tíu löndum. Í mörgum þeirra eru engar áætlanir komnar fram um hvernig kaupendur geta skilað tækjum sínum og fengið ný né hvar.
Annar vandi sem Samsung á nú við er hvort þeir eigi nægilega marga síma til að vega upp á móti þeim sem kalla þarf inn á skömmum tíma.
Frá innkölluninni, þann 2. september, hafa hlutabréf í fyrirtækinu lækkað í verði um rúmlega tíu milljarða dala.
Innköllun Samsung hefur og mun reynast fyrirtækinu erfið. Hins vegar er hún algjör himnasending fyrir helsta samkeppnisaðila Samsung, Apple. Í gær hafði markaðsvirði Apple aukist um 27 milljónir dala frá því á föstudaginn.
Samsung Galaxy Note 7 hafði verið vel tekið af gagnrýnendum og notendum og var líklegur til að seljast mjög vel. Á meðan hvert vandamálið virðist hafa komið upp á eftir öðru hjá Samsung steig Apple fram og kynnti tvo nýja síma. iPhone 7 og 7 Plus.
Greinendur gera ráð fyrir því að sala nýju síma Apple verði mun betri vegna klúðurs Samsung. Bandarísku símafyrirtækin Sprint og T-Mobile hafa þegar gefið út að forpantanir hafi þegar brotið sölumet og séu jafnvel fjórum sinnum fleiri en þær voru þegar iPhone 6 kom út.

