Jafnt í fjörugum leik á Westfalen Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. september 2016 20:30
Borussia Dortmund og Real Madrid skildu jöfn, 2-2, í hörkuleik í F-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. André Schürrle tryggði Dortmund stig þegar hann jafnaði metin með frábæru skoti þremur mínútum fyrir leikslok. Real Madrid komst tvisvar yfir í leiknum en náði ekki að landa sigri. Jafnteflið þýðir samt að Evrópumeistararnir eru ósigraðir í 23 leikjum í röð í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn á Westfalenstadion var mjög fjörugur og bæði lið áttu sína spretti. Cristiano Ronaldo kom Real Madrid í 0-1 á 17. mínútu með sínu 98. marki í Meistaradeildinni. Á markamínútunni, þeirri fertugustuogþriðju, jafnaði markahrókurinn Pierre-Emerick Aubameyang metin fyrir Dortmund eftir mistök Keylor Navas í marki Real Madrid. Staðan var 1-1 í hálfleik og fram á 68. mínútu þegar franski miðvörðurinn Raphael Värane kom Real Madrid aftur yfir með skoti af stuttu færi eftir að Karim Benzema skaut í stöngina. En Schürrle sá til þess að Dortmund fékk stig þegar hann skoraði á 87. mínútu eins og áður sagði. Bæði lið eru með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar í F-riðli.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Stjörnur eiga leik á HM, NFL og enski Sport Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Handbolti Fleiri fréttir Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Sjá meira