Wasser er mjög eftirsótt í heimi Hollywood. Þannig var hún lögmaður söngkonunnar Britney Spears fyrir hartnær tíu árum þegar hún glímdi við andlegt niðurbrot og tryggði það að Britney fengi að halda sonum sínum tveim.
Skilnaður bandaríska leikaraparsins Angelinu Jolie, 41 árs, og Brad Pitt, 52 ára, hefur vart farið framhjá nokkrum manni og nú þegar til stendur að þau geri upp sín mál, mætir Jolie sérstaklega vel undirbúin til leiks.
Fráskilin tveggja barna móðir
Í frétt VG segir að hin 48 ára Wasser sé sjálf fráskilin tveggja barna móðir. Oft hefur vísað í orð sen hún lét einhvern tímann falla um að „allir eigi að giftast – einu sinni“.
Sjá einnig:Ýmsar kenningar á sveimi um ástæður skilnaðar Brangelinu: Grasneysla Pitt, hugsanlegt framhjáhald hans og umdeildar uppeldisaðferðir
Fyrsti skilnaðurinn sem hún hélt utan um sem lögmaður, var hennar eigin skilnaður og hennar fyrrverandi. Hún var þá 25 ára gömul.

Langur listi skjólstæðinga
Listinn yfir skjólstæðinga Wasser er langur. Þar má meðal annars finna Shaquille O’Neal, systurnar Kim og Khloe Kardashian, Ryan Reynolds, Ashton Kutcher, Kris Jenner, Stevie Wonder, Heidi Klum, Christinu Aguilera, Mariah Carey, Kiefer Sutherland, Drew Barrymore og Denise Richards.
Sjá einnig: Blóð, Brennifer, Brangelina og brostin hjörtu
Sömuleiðis hafa Maria Shriver, fyrrverandi eiginkona Arnold Schwarzenegger, og Robyn Moore, fyrrverandi eiginkona Mel Gibson, ráðið hana til starfa.
Með upphafsstafina LAW
Wasser fæddist í Los Angeles árið 1968. Hún er dóttir lögfræðings sem einnig sinnti skilnaðarmálum fræga fólksins, en hann tók meðal annars að sér skilnaðarmál Steven Spielberg og Tom Cruise. Að sögn var Lauru gefið millinafnið Allison til að hún gæti slegið um sig og notast við upphafsstafina LAW.
Sjá einnig: Jennifer Aniston skellihlær á forsíðu New York Post
Foreldrar Wasser skildu þegar hún var sextán ára og segir hún að það sem hafi verið gott við þann skilnað var að þau skildu áður en þau tóku að hata hvort annað. „Þau vissu hvenær þau ættu að segja skildið við hvort annað. Og það þýddi að þegar ég giftist sjálf þá gengu þau bæði með mér upp kirkjugólfið.“
Wasser veit það að þegar fræga fólkið er annars vegar þá fylgir því mikil fjölmiðlaumfjöllun þegar skilnaðir koma upp. Að sögn kunnugra fylgir hún ákveðnu verklagi til að lágmarka fjölmiðlaumfjöllunina, meðal annars með því að láta fleiri en einn skjólstæðinga sinna greina frá skilnuðum sínum samtímis og þannig dreifa athyglinni. Annað bragð er að biðja skjólstæðingana um að ná samkomulagi um smáatriði áður en málið kemur til kasta dómstóla.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jolie ræður Wasser til starfa. Það gerði hún einnig þegar hún skildi við leikarann Billy Bob Thornton árið 2002.
Wasser hefur margoft lagt áherslu á að hún sé engin baráttukona fyrir skilnuðum. Þvert á móti „elski hún gott brúðkaup“. Sjálf hefur hún sagt að hún muni sjálf ekki giftast á nýjan leik, en hún á tvo syni með tveimur mönnum, þó ekki manninum sem hún var gift á sínum tíma.
VG hefur eftir Wasser að hún álíti skilnað vera það allra síðasta í stöðunni og hefur ávallt hvatt aðila til að reyna að bjarga sambandinu, sé það á annað borð í stöðunni. Það virðist þó ekki hafa gengið eftir í tilviki þeirra Jolie og Pitt.