Sakborningar í Papeyjar- og Pólstjörnumálunum ákærðir fyrir frelsissviptingu og líkamsárás Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 3. október 2016 07:00 Sakborningar í Papeyjarmálinu þegar málið var til meðferðar í héraðsdómi. vísir/gva
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur þremur karlmönnum á fertugsaldri sem grunaðir eru um sérstaklega hættulega líkamsárás og frelssviptingu gegn pari við verslunarmiðstöðina Grímsbæ í Fossvogi í Reykjavík í júlí 2014 eða fyrir rúmlega tveimur árum. Þremenningarnir eru sakaðir um að hafa veist að parinu, karlmanni og konu á fimmtugs- og sextugsaldri, með því að hafa slegið þau ítrekað í andlitið með krepptum hnefa. Þá eru þeir sagðir hafa tekið utan um háls konunnar og hert að. Sjá einnig: Klukkustund í greipum handrukkara Því næst eru mennirnir grunaðir um að hafa þvingað fólkið inn í bifreið, en konunni tókst að flýja út um glugga bifreiðarinnar. Þeir hafi ekið með karlmanninn í Garðabæ, haldið honum föngnum í allt að fjörutíu mínútur, og veist að honum. Einn þremenninganna er sagður hafa slegið manninn með kúbeini í rist hægri fótar, höfuð og líkama, á meðan annar sló hann ítrekað með krepptum hnefa í líkama og höfuð. Að því loknu ekið með manninn í Hafnarfjörð. Sakborningar í Pólstjörnusmyglinu svonefnda.vísir/eyþór Tveir mannanna, Alvar Óskarsson, og Jónas Árni Lúðvíksson, hafa báðir hlotið þunga dóma. Þeir voru báðir dæmdir fyrir aðild að umfangsmestu fíkniefnamálum sem upp hafa komið hér á landi. Pólstjörnumálið í tilfelli Alvars og Papeyjar-málið í tilfelli Jónasar. Alvar Óskarsson hlaut sjö ára fangelsisdóm árið 2008 í Pólstjörnumálinu en hann, ásamt fimm öðrum mönnum, var dæmdur fyrir að flytja um fjörutíu kíló af fíkniefnum til landsins með skútu til Fáskrúðsfjarðar. Jónas Árni Lúðvíksson var dæmdur í fimm ára fangelsi vegna Papeyjarmálsins árið 2009. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt að smygla hingað til lands rúmlega hundrað kílóum af fíkniefnum.
Pólstjörnumálið Papeyjarmálið Tengdar fréttir Papeyjarsmyglarar aftur dæmdir til fangelsisvistar Tveir menn, sem dæmdir voru fyrir fíkniefnasmygl í Papeyjarmálinu árið 2009, eiga yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi fyrir að hafa ráðist á karlmann í byrjun júlímánaðar síðastliðinn. 5. ágúst 2014 18:52 Vistun Papeyjarfanga gæti kostað samfélagið 350 milljónir Það gæti kostað alls 352 milljónir að vista mennina sem voru dæmdir í Papeyjarmálinu í gær í fangelsi næstu árin. Samkvæmt upplýsingum frá Páli Winkel fangelsismálastjóra kostar vistun fanga 24 þúsund krónur á sólarhring. 7. ágúst 2009 11:32 Höfuðpaurinn í Pólstjörnumálinu tekinn með fíkniefni Einar Jökull Einarsson sem fékk þyngsta dóminn í Pólstjörnumálinu svokallaða hefur verið ákærður fyrir vörslu fíkniefna. Einar Jökull afplánar nú níu og hálfs árs fangelsisdóm á Litla Hrauni fyrir að hafa skipulagt smygl á tæpum fjörutíu kílóum af fíkniefnum sem komu hingað til lands með skútu. 7. maí 2009 09:34 Peð nýkomið af geðdeild sem höfuðpaurar fórnuðu Bjarni Hauksson, nýskipaður verjandi Atla Freys Fjölnissonar, telur eðlilegt að milda dóm skjólstæðings síns úr fimm árum í tvö. Ásetningur sé með minnsta móti og fordæmi sem kalli á vægari dóm. 27. janúar 2016 12:14 Telja pólstjörnumanninn á leiðinni til Spánar Frjálslyndi flokkurinn telur að Guðbjarni Traustason, sem lögreglan hefur leitað síðan hann skilaði sér ekki aftur á Litla Hraun, þar sem hann afplánar dóm fyrir fíkniefnasmygl, sé á leiðinni til Alicante. 1. mars 2010 20:38 Ein stærsta lögregluaðgerð fyrr og síðar Lögregla réðst inn á skipulagsfund Outlaws og á sex aðra staði vítt og breitt um suðvesturhorn landsins. Fann dóp, vopn, þýfi og bruggtæki. Sextán voru handteknir og fjórir færðir fyrir dómara í gærkvöldi, meðal annars leiðtogi klúbbsins. 5. október 2012 03:00 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira
Papeyjarsmyglarar aftur dæmdir til fangelsisvistar Tveir menn, sem dæmdir voru fyrir fíkniefnasmygl í Papeyjarmálinu árið 2009, eiga yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi fyrir að hafa ráðist á karlmann í byrjun júlímánaðar síðastliðinn. 5. ágúst 2014 18:52
Vistun Papeyjarfanga gæti kostað samfélagið 350 milljónir Það gæti kostað alls 352 milljónir að vista mennina sem voru dæmdir í Papeyjarmálinu í gær í fangelsi næstu árin. Samkvæmt upplýsingum frá Páli Winkel fangelsismálastjóra kostar vistun fanga 24 þúsund krónur á sólarhring. 7. ágúst 2009 11:32
Höfuðpaurinn í Pólstjörnumálinu tekinn með fíkniefni Einar Jökull Einarsson sem fékk þyngsta dóminn í Pólstjörnumálinu svokallaða hefur verið ákærður fyrir vörslu fíkniefna. Einar Jökull afplánar nú níu og hálfs árs fangelsisdóm á Litla Hrauni fyrir að hafa skipulagt smygl á tæpum fjörutíu kílóum af fíkniefnum sem komu hingað til lands með skútu. 7. maí 2009 09:34
Peð nýkomið af geðdeild sem höfuðpaurar fórnuðu Bjarni Hauksson, nýskipaður verjandi Atla Freys Fjölnissonar, telur eðlilegt að milda dóm skjólstæðings síns úr fimm árum í tvö. Ásetningur sé með minnsta móti og fordæmi sem kalli á vægari dóm. 27. janúar 2016 12:14
Telja pólstjörnumanninn á leiðinni til Spánar Frjálslyndi flokkurinn telur að Guðbjarni Traustason, sem lögreglan hefur leitað síðan hann skilaði sér ekki aftur á Litla Hraun, þar sem hann afplánar dóm fyrir fíkniefnasmygl, sé á leiðinni til Alicante. 1. mars 2010 20:38
Ein stærsta lögregluaðgerð fyrr og síðar Lögregla réðst inn á skipulagsfund Outlaws og á sex aðra staði vítt og breitt um suðvesturhorn landsins. Fann dóp, vopn, þýfi og bruggtæki. Sextán voru handteknir og fjórir færðir fyrir dómara í gærkvöldi, meðal annars leiðtogi klúbbsins. 5. október 2012 03:00