Gylfi: Vonandi nær Bradley að snúa þessu við Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. október 2016 12:30 Gylfi Þór í leik með Swansea. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson hefur fengið nýjan knattspyrnustjóra hjá Swansea en Ítalanum Francesco Guidolin var sagt upp störfum í gær og Bob Bradley, fyrrum þjálfari bandaríska landlsiðsins, ráðinn í hans stað. „Mér líst ágætlega á hann en það er erfitt að segja mikið fyrr en maður hefur kynnst honum,“ sagði Gylfi en Swansea er nú í sautjánda sæti deildarinnar eftir sex leiki í röð án sigurs. Gylfi ræddi eins og aðrir íslenskir landsliðsmenn við fjölmiðla á Laugardalsvelli í dag þar sem íslenska landsliðið æfði í hádeginu fyrir leik þess gegn Finnlandi á fimmtudagskvöld. „Allir þeir sem ég hef rætt við tala mjög vel um hann og vonandi nær hann að snúa þessu við hjá okkur,“ sagði Gylfi enn fremur. „Það er samt aldrei að vita hvort að það sé rétt ákvörðun að skipta um stjóra fyrr en eftir á. Það virkaði í fyrra [þegar Guidolin var ráðinn] og okkur gekk mjög vel í síðari hluta mótsins. Vonandi gerist það sama núna.“ Swansea hefur spilað gegn Liverpool, Chelsea, Leicester, Southampton og Manchester City síðustu vikurnar og mætir Arsenal í fyrsta leik eftir landsleikjafrí. „Þetta hefur því verið nokkuð erfitt prógramm hjá okkur en að sama skapi höfum við ekki verið að spila góðan fótbolta. Svona er þetta stundum og vonandi náum við að laga þetta sem allra fyrst.“
Enski boltinn HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Sjá meira