Þjálfarinn út í rútu þegar liðið datt út úr bikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2016 11:00 Roger Schmidt. Vísir/Getty
Roger Schmidt mátti ekki koma nálægt leik sinna manna í Bayer Leverkusen í gær þegar liðið datt óvænt út úr þýsku bikarkeppninni. Bayer Leverkusen tapaði þá 4-3 í vítakeppni á móti þriðju deildarliðinu Sportfreunde Lotte en þetta var önnur umferð þýska bikarsins. Roger Schmidt þurfti að horfa á leikinn á spjaldtölvu út í rútu liðsins því hinn 49 ára gamli þjálfari tók út fyrsta leikinn í tveggja leikja banni. Roger Schmidt var dæmdur í bann fyrir að öskra ókvæðisorð að þjálfara Hoffenheim í leik liðanna í þýsku deildinni á laugardaginn var. Hann var í raun að klára fimm leikja bann frá því í fyrra en tveir síðustu leikirnir voru skilorðsbundnir. Eftir læti Roger Schmidt á hliðarlínunni um helgina var það ljóst að hann yrði að taka út síðustu tvo leikina. Það dugði ekki Bayer Leverkusen að leikmenn Sportfreunde Lotte klikkuðu á tveimur fyrstu vítaspyrnum sínum í vítakeppninni. Kevin Volland og Charles Aranguiz hjá Bayer Leverkusen klikkuðu báðir á sínum vítum og markvörðurinn Benedikt Fernandez var síðan hetjan þegar hann varði síðustu spyrnu Leverkusen frá Julian Baumgartlinger. Þetta er búið að vera mikið bikarævintýri hjá Sportfreunde Lotte í vetur en liðið sló Werder Bremen út í fyrstu umferðinni.
Þýski boltinn Mest lesið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Íslenski boltinn Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Íslenski boltinn Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Handbolti Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Handbolti Ederson nálgast Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Fyrirliðinn braut hjörtu Hearts Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Stórlið slást um Gordon Schmeichel neyðist til að hætta vegna meiðsla Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Nuno verður áfram stjóri West Ham Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Risafréttir af Putellas fyrir Reykjavíkurför HM-hetja mun stýra Alberti „Restin var bara ekki með“ „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Rodri ekki meira með KA í ár Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut City að vinna United í slagnum um Anderson Sjá meira