Haukar drógust gegn hollenska liðinu Virto / Quintus í 16-liða úrslitum Áskorendabikars Evrópu í handbolta.
Haukastelpur slógu ítalska liðið Jomi Salerno út í 32-liða úrslitunum um helgina, samanlagt 50-41.
Fyrri leikurinn gegn Virto / Quintus fer fram 4. eða 5. febrúar á næsta ári og sá síðari 11. eða 12. febrúar.
Virto / Quintus hefur verið fastagestur í Evrópukeppnum á undanförnum árum. Á síðasta tímabili komst liðið í 8-liða úrslit Áskorendabikarsins þar sem það féll úr leik fyrir tyrkneska liðinu Kastamonu B. Genclik.
Virto / Quintus situr í 2. sæti hollensku deildarinnar með 19 stig, einu stigi á eftir toppliði VOC Amsterdam.
Haukar til Hollands

Tengdar fréttir

Haukar áfram eftir fimm marka sigur á Ítalíu
Haukar komust áfram í Áskorendabikar Evrópu í handbolta eftir fimm marka sigur á ítalska félaginu Jomi Salerno ytra í dag.