Helgi og Sonja Íþróttafólk ársins hjá fötluðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2016 15:54 Helgi Sveinsson og Sonja Sigurðardóttir eru íþróttafólk ársins hjá fötluðum. Vísir/Eyþór
Frjálsíþróttamaðurinn Helgi Sveinsson og sundkonan Sonja Sigurðardóttir voru í dag útnefnd íþróttamaður og íþróttakona ársins úr röðum fatlaðra en þau fengu verðlaunin afhent við viðhöfn á Radisson Blu á Hótel Sögu. Þetta voru ekki einu verðlaunin sem voru afhent í dag því sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson fékk Afreksskjöld ÍF og Helga Olsen fékk Hvataverðlaunin 2016. Helgi Sveinsson var að fá þessa viðurkenningu annað árið í röð en Sonja í fyrsta sinn í sjö ár. Sonja endaði þá þriggja ára sigurgöngu Thelmu Bjargar Björnsdóttur sem var valin íþróttakona ársins 2012, 2013 og 2015. Helgi og Sonja eru bæði að fá þessi verðlaun í þriðja sinn. Helgi vann þau einnig 2012 og 2015 en Sonja hafði áður unnið þau 2008 og 2009.Íþróttakona ársins 2016 er Sonja Sigurðardóttir sundkona frá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík, ÍFR. Þetta er í þriðja sinn sem Sonja hlýtur nafnbótina Íþróttakona ársins úr röðum fatlaðra en hún hlaut verðlaunin einnig árin 2008 og 2009. Helsta afrek Sonju á árinu var Íslandsmet hennar í 50m baksundi á Paralympics í Ríó de Janeiro í Brasilíu. Sonja komst þá í úrslit í greininni og setti þar nýtt og glæsilegt Íslandsmet er hún kom í bakkann á tímanum 59,97 sek. Sonja hafnaði í 8. sæti í keppninni. Sonja keppti á þremur alþjóðlegum stórmótum á árinu, bar þar hæst vitaskuld þátttaka hennar á Paralympics en hún keppti einnig á opna þýska meistaramótinu og Evrópumeistaramótinu í Portúgal. Þjálfarar Sonju í gegnum tíðina hafa verið þeir Jón Heiðar Jónsson, Halldór Guðbergsson, Erlingur Þ. Jóhannsson og núverandi þjálfari hennar hjá ÍFR er Tomas Hajek.Íþróttamaður ársins 2016 er Helgi Sveinsson, spjótkastari frá Ármanni. Rétt eins og í tilfelli Sonju er þetta einnig í þriðja sinn sem Helgi hlýtur nafnbótina Íþróttamaður ársins úr röðum fatlaðra. Helgi varð fyrst íþróttamaður ársins 2013 og svo aftur 2015 og er þetta því annað árið í röð sem Helgi er útnefndur. Helsta afrek Helga á árinu var Evrópumeistaratitill í spjótkasti í sameiginlegum flokki F42,43 og 44 sem og hörð barátta hans í úrslitum spjótkastkeppninnar á Paralympics þar sem hann hafnaði í 5. sæti á nýju Paralympic-meti er hann kastaði spjótinu 53,96 metra. Þjálfari Helga í dag er Kári Jónsson en þjálfarar frá upphafi eru áðurnefndur Kári, Guðmundur Hólmar Jónsson og Einar Vilhjálmsson.Stjórn Íþróttasambands fatlaðra hefur ákveðið að veita Jóni Margeiri Sverrissyni afreksskjöld sambandsins fyrir sitt framlag til íþrótta fatlaðra. Jón er á meðal fremstu afreksmanna Íslendinga og hefur ákveðið að hætta afrekssundmennsku sinni. Í reglugerð um heiðursmerki ÍF segir: „Afreksskjöldur ÍF er silfurmerki á silfurskildi, borið í borða með íslensku fánalitunum. Skal aðeins veita þeim, sem vinna frábær íþróttaafrek og hljóta verðlaun á alþjóðlegum stórmótum.“ Jón Margeir náði hámarki ferils síns þegar hann vann til gullverðlauna á Paralympics 2012 í London. Setti Jón þátt nýtt Paralympic-met og um leið heimsmet í 200m skriðsundi í flokki S14, þroskahamlaðir. Ferill Jóns er einkar glæsilegur og hefur hann verið mörgum íþróttamanni úr röðum fatlaðra innblástur í sinni íþróttaiðkun sem og fyrirtaks fulltrúi íþrótta bæði hér innanlands sem og erlendis. Það er stjórn ÍF heiður að sæma Jón Margeir afreksskyldi sambandsins. Hvataverðlaunin 2016 hlýtur Helga Olsen. Hvataverðlaunin eru veitt einstaklingum, félagasamtökum, stofnun, fyrirtæki eða öðrum aðilum sem á framsækinn hátt hafa unnið í þágu íþróttastarfs fatlaðra á árinu Helga Olsen er kennari og skautaþjálfari. Helga kom að starfi með Íþróttasambandi fatlaðra þegar hún tók að sér þjálfun keppenda í listhlaupi á skautum fyrir alþjóðaleika Special Olympics í Japan árið 2005. Þá starfaði hún sem skautaþjálfari hjá skautafélaginu Birninum. Hún hefur leitt skautastarf fyrir fatlaða á Íslandi og starfar nú hjá skautadeild Aspar. Þar æfa einstaklinga með mismunandi fötlun og í gegnum skautastarfið hafa fjölmargir Íslendingar, fengið tækifæri til þátttöku á mótum innanland og erlendis. Helga hefur verið sérlega ötul við að ná til sérhæfðra skautaþjálfara og dómara og fá þá í lið með sér í skautastarfi fyrir fatlaða. Hún hefur með góðu fólki, skipulagt alþjóðleg skautamót á Íslandi fyrir alla fötlunarflokka og verið mjög virk í að efla greinina fyrir einstaklinga með fötlun / sérþarfir. Hún er í hlutverki íþróttagreinastjóra Special Olympics á Íslandi í skautaíþróttum og sinnir því hlutverki af miklum krafti. Helga hefur sem kennari staðið að skólaverkefni í samstarfi við Special Olympics á Íslandi en verkefnið tengdi saman nemendur og keppendur sem tóku þátt í alþjóðavetrarleikum Special Olympics. Hólabrekkuskóli hlaut verðlaun fyrir verkefnið 2013. Helga hefur aftur sett af stað skólaverkefni sem tengist alþjóðavetrarleikum Special Olympics í Austurríki árið 2017 þar sem verða 4 íslenskir keppendur. Þrátt fyrir að skautaverkefnið sé upphaflega innleitt gegnum Special Olympics á Íslandi hefur ávallt ríkt sú gegnumgangandi stefna að verkefni eiga að vera í þágu allra fötlunarhópa og Helga hefur fylgt því mjög vel eftir í sínu starfi
Aðrar íþróttir Fréttir ársins 2016 Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Íslenski boltinn Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Íslenski boltinn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Fleiri fréttir Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Hólmbert Aron til Suður-Kóreu Katla kynnt til leiks í Flórens Hitti bolta sem var á 167 kílómetra hraða Bannað að sniffa ammóníak í leikjum Svakalegir ráshópar á fyrsta degi á Íslandsmótinu í golfi Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Opinberuðu sambandið með sigurkossi Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Lars sendi kveðju til Íslands Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Sjá meira