Þakklátur Stefán Karl skilur hvorki upp né niður í óvæntri internet-frægð Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. desember 2016 11:30
Leikarinn góðkunni, Stefán Karl Stefánsson, skilur hvorki upp né niður í óvæntri internet-frægð sinni eftir að svokallað meme úr Latabæ þar sem Glanni Glæpur er í fyrirrúmi fór á flug. Hann er þó afar ánægður með framtak þeirra sem standa að baki meme-unum og þakklátur fyrir þann stuðning sem þau hafa fært honum í veikindunum. „Ég er einhver mesti netbjáni sem hægt er að spyrja. Mér er tjáð að þetta sé svokallað meme og ég horfði bara á dóttur mína og sagði: „Já, auðvitað er þetta meme. Það vita allir hvað það er.“ Ég hef ekki hugmynd um hvað þetta er,“ sagði Stefán Karl í Bítinu á Bylgjunni í morgun aðspurður um hvað væri í gangi.Líkt og Vísir greindi frá í gær er forsaga málsins sú að milljónir hafa horft á svokallað meme af myndbandi úr Latabæ. Meme er hugmynd, frasi eða einhvers konar mynd, texti, myndband sem dreifist um internetið og líkt er eftir og sett í alls kyns útgáfur hér og þar. „Það að komast inn á þennan meme-markað er eitthvað sem allir þrá en enginn getur planað,“ sagði Stefán Karl.Donald Trump í gervi Stefáns Karls.VísirÓendanlega vinsælt og Stefán Karl nýtur góðs af því Milljónir horft á mismunandi útgáfur af laginu We Are Number One úr Latabæ sem framtakssamir notendur YouTube hafa útbúið. Segja má að Stefán Karl og fjölskylda muni njóta góðs af þessari óvæntu frægð en með hverju myndbandi fylgir hlekkur á söfnunarsíðu til styrktar Stefáni Karli og fjölskyldu hans en Stefán Karl greindist með krabbamein fyrr í haust. Óhætt er að segja að blússandi gangur sé í söfnuninni en fyrir um þremur vikum var búið að safna fimm milljónum og líkt og sjá má á söfnunarsíðunni sjálfri er ljóst að margir þeirra sem lagt hafa í púkkið fundu söfnunarsíðuna í gegnum myndböndin sem um ræðir. „Mér finnst þetta frábært hvað þessir krakkar eru að nota internetið til þess að gefa af sér. Mér finnst það með ólíkindum að ungir krakkar út um allan heim vita af þessu afli sínu,“ sagði Stefán Karl. Stefán Karl er þakklátur fyrir framtakið en um ellefu milljónir hafa safnast til þessa. Ljóst er að hann glímir við erfið veikindi og því má gera ráð fyrir að sjóður sem þessi komi sér vel í baráttunni. „Ég er ekki farinn að sjá neitt af þessum pening en ég veit að hann er þarna. Verður maður ekki bara að fara í hlutafjárútboð,“ sagði Stefán í gamansömum tón. „Fyrst og fremst er litið á þetta sem sjóð barna minna fyrir þeirra framtíð. Ég veit ekki hvað mín framtíð ber í skauti sér en þannig lít ég á þetta.“Stefán Karl sem Glanni glæpur.Átján þúsund bréf og tilkynningar til stuðnings Stefáni Karli á einu kvöldi Í þakklætisskyni ákvað Stefán Karl í samráði við höfund lagsins We Are Number One og framleiðendur Latabæ að gefa allar hljóðskrár lagsins út á netið svo að hver sem er geti útbúið meme. Þá flutti Stefán Karl, ásamt félögum sínum, lagið í beinni útsendingu á Facebook á sunnudaginn. Viðbrögðin voru gífurleg. „Ég ætla ekki að lýsa tilfinningunni sem það er að fá þúsundir bréfa. Á sunnudagskvöldið fengum við átján þúsund tilkynningar og bréf. Ég kemst ekki yfir að lesa þetta allt en ég var bara með tár í augunum að lesa bréf frá fólki að tala um að ég hafi verið hluti af þeirra barnæsku og þess vegna vilji þau gefa af sér. Fólk sem segist hafa snúið við þunglyndi sínu með því að taka við Glanna og að ég hafi náð að aðstoða þau í gegnum námserfiðleika og ég veit ekki hvað og hvað,“ sagði Stefán Karl. Einum fjórða af lyfjameðferð Stefáns er nú lokið en þráðurinn verður aftur tekinn upp í næsti viku. Í millitíðinni ætlar Stefán Karl að éta á sig gat með jólasmákökum. Vonast Stefán Karl til þess að meðferðin skili tilætluðum árangri. „Þetta verður svona eitthvað fram eftir næsta ári. Lyf og geislar til skiptis, svo vonandi verður maður laus og kemst aftur á lappir svo maður geti farið að láta til sín taka svo eftir verði tekið.“Hlusta má á viðtalið við Stefán Karl í heild sinni hér að ofan en hér að neðan má sjá upprunalega lagið sem allt snýst um og nokkur dæmi um meme sem útbúin hafa verið út frá því.
Donald Trump Tengdar fréttir Stefán Karl gjafmildur eftir að hafa orðið óvænt internet-stjarna Milljónir hafa horft á myndbönd til heiðurs Stefáni Karli. 13. desember 2016 14:00 Aðdáendur Stefáns Karls hópfjármagna milljónir til stuðnings baráttu hans við veikindin Hafa safnað á sjöttu milljón með hjálp hópfjármögnunarsíðunnar GoFundMe. 25. nóvember 2016 21:18 Einlægt viðtal við Stefán Karl: "Maður brestur í grát, verður lítill og ósjálfbjarga“ Eftir tæpa viku undirgengst Stefán Karl Stefánsson leikari erfiða aðgerð sem tekur upp undir átta klukkustundir. 29. september 2016 09:52 Stefán Karl svaraði spurningum á Reddit úr sjúkrarúminu Ljóst er að Stefán Karl á marga aðdáendur úti í heimi og óskuðu þeir honum góðs bata og spurðu hann spjörunum úr um Glanna Glæp, leiklistina og veikindin. 14. október 2016 10:28 Aðgerðin á Stefáni Karli gekk að óskum Ekkert óvænt kom upp í aðgerðinni og líður leikaranum eftir atvikum vel. 5. október 2016 09:02 Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Pattra með pæju-padelmót Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Fleiri fréttir Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Sjá meira
Stefán Karl gjafmildur eftir að hafa orðið óvænt internet-stjarna Milljónir hafa horft á myndbönd til heiðurs Stefáni Karli. 13. desember 2016 14:00
Aðdáendur Stefáns Karls hópfjármagna milljónir til stuðnings baráttu hans við veikindin Hafa safnað á sjöttu milljón með hjálp hópfjármögnunarsíðunnar GoFundMe. 25. nóvember 2016 21:18
Einlægt viðtal við Stefán Karl: "Maður brestur í grát, verður lítill og ósjálfbjarga“ Eftir tæpa viku undirgengst Stefán Karl Stefánsson leikari erfiða aðgerð sem tekur upp undir átta klukkustundir. 29. september 2016 09:52
Stefán Karl svaraði spurningum á Reddit úr sjúkrarúminu Ljóst er að Stefán Karl á marga aðdáendur úti í heimi og óskuðu þeir honum góðs bata og spurðu hann spjörunum úr um Glanna Glæp, leiklistina og veikindin. 14. október 2016 10:28
Aðgerðin á Stefáni Karli gekk að óskum Ekkert óvænt kom upp í aðgerðinni og líður leikaranum eftir atvikum vel. 5. október 2016 09:02