Virku dagana sóttu 176 þúsund notendur vefinn að meðaltali á dag og um helgina voru þeir 143 þúsund. Þá lásu einnig tæplega 29 þúsund erlendir notendur Vísi á dag.
Þennan mikla lesendafjölda má rekja til margra fréttamála sem dreifðu sér jafnt yfir vikuna.

Næsti vefur á listanum er mbl.is með um 163 þúsund notendur á dag. Því næst kemur DV með 77 þúsund, RÚV með 54 þúsund og Já með 52 þúsund notendur á dag.
Gallup heldur utan um mælinguna og er hægt að rýna nánar í tölurnar á síðunni topplistar.gallup.is. Á síðunni er einnig hægt að skoða dekkun þeirra netmiðla sem taka þátt í mælingunni eftir kyni, aldri, búsetu, menntun og tekjum en þeim upplýsingum var nýlega bætt við.
Ritstjórn Vísis þakkar lesendum sínum kærlega fyrir heimsóknirnar undanfarnar vikur.
Við tökum fagnandi við ábendingum, innsendum greinum og athugasemdum á ritstjórnarpóstinum okkar (ritstjorn@visir.is) og minnum á að nýjustu og helstu fréttir okkar eru birtar jafnóðum á Facebook-síðu Vísis þar sem samtal við lesendur er einnig mjög virkt allan sólarhringinn.