Körfubolti

Martin stoðsendingahæstur í fyrsta tapi Charleville Mézières í rúman mánuð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eftir fimm sigurleiki í röð töpuðu Martin Hermannsson og félagar í franska B-deildarliðinu Charleville Mézières fyrir Nantes í kvöld, 71-75.

Martin skoraði 10 stig og gaf níu stoðsendingar í leiknum. Hann var stoðsendingahæstur allra á vellinum.

Martin hitti úr þremur af sex skotum sínum í teignum og nýtti öll fjögur vítin sín.

Landsliðsmaðurinn var þó kaldur fyrir utan þriggja stiga línuna en öll fimm skot hans þaðan

geiguðu.

Charleville Mézières er í 2. sæti deildarinnar með níu sigra og þrjú töp. Næsti leikur liðsins er gegn Lille 27. desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×