Mynd að komast á HM-hóp Dags

Líkt og allir þjálfarar þeirra liða sem taka þátt á HM valdi Dagur upphaflega 28 leikmenn í HM-hóp sinn. Hann hefur nú skorið hann niður um 10 leikmenn.
Lokahópurinn telur 16 leikmenn en heimilt er að gera tvær breytingar á honum á meðan á HM stendur.
Nokkuð er um forföll í þýska liðinu. Skytturnar Steffen Weinhold, Fabian Wiede og Christian Dissinger eru meiddir og línumaðurinn Hendrik Pekeler óskaði eftir því að fá hvíld.
Tíu af 18 leikmönnum í hópnum voru í þýska liðinu sem vann til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í ágúst. Ellefu leikmenn í HM-hópnum léku á EM í Póllandi í byrjun árs þar sem Þjóðverjar stóðu uppi sem sigurvegarar.
Heimsmeistaramótið í Frakklandi verður síðasta stórmót Dags með þýska landsliðið en hann hefur sem kunnugt er samið við japanska handknattleikssambandið um að þjálfara karlalandslið Japans til ársins 2024.
Þýskaland leikur tvo vináttulandsleiki fyrir HM, gegn Rúmeníu 3. janúar og Austurríki 9. janúar.
Þjóðverjar eru í riðli með Ungverjalandi, Króatíu, Hvíta-Rússlandi, Síle og Sádí-Arabíu á HM sem hefst 11. janúar á næsta ári.
Átján manna HM-hópur Þýskalands er skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir:
Silvio Heinevetter - Füchse Berlin, 150 landsleikir/1 mark),
Andreas Wolff - THW Kiel, 42/6
Vinstri hornamenn:
Uwe Gensheimer - Paris Saint-Germain HB, 131/585
Rune Dahmke - THW Kiel, 20/46
Vinstri skyttur:
Finn Lemke - SC Magdeburg, 43/21
Paul Drux - Füchse Berlin, 42/95
Steffen Fäth - Füchse Berlin, 43/82
Philipp Weber - HSG Wetzlar, 0/0
Julius Kühn - VfL Gummersbach, 21/76
Leikstjórnendur:
Simon Ernst - VfL Gummersbach, 28/29,
Niclas Pieczkowski - SC DHfK Leipzig, 21/24
Hægri skyttur:
Kai Häfner - TSV Hannover-Burgdorf, 41/90
Jens Schöngarth - Frisch Auf Göppingen, 17/26
Hægri hornamenn:
Tobias Reichmann - KS Vive Tauron Kielce, 58/181
Patrick Groetzki - Rhein-Neckar Löwen, 102/274
Línumenn:
Patrick Wiencek - THW Kiel, 94/216
Erik Schmidt - TSV Hannover-Burgdorf, 34/38
Jannik Kohlbacher - HSG Wetzlar, 21/40
Tengdar fréttir

Dagur semur við Japan til ársins 2024
"Þetta er búið að eiga sér langan aðdraganda. Það eru svona tíu ár síðan ég byrjaði að vera í stöðugu sambandi við japanska sambandið,“ segir Dagur Sigurðsson handboltaþjálfari við Vísi en í kvöld verður tilkynnt að hann hafi samið við japanska handknattleikssambandið.

Áfall fyrir Dag og Alfreð
Dagur Sigurðsson og Alfreð Gíslason urðu báðir fyrir miklu áfalli í gær þegar örvhenta skyttan Steffen Weinhold meiddist illa á ökkla í leik Kiel og Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Einstakt EM-ár hjá einni þjóð
Þjálfarar Evrópumeistara karla og kvenna í handbolta eiga það sameiginlegt að vera Íslendingar. Það er sögulegt. Sama þjóð hefur aldrei átt tvo þjálfara Evrópumeistara í handbolta á sama árinu.

Dagur tilkynnir stóra HM-hópinn
Dagur Sigurðsson hefur tilkynnt hvaða 28 leikmenn koma til greina í HM-hóp þýska landsliðsins í handbolta.

Dagur hættir með þýska landsliðið og tekur við Japan
Dagur Sigurðsson mun stýra þýska handboltalandsliðinu í síðasta sinn á HM í Frakklandi í byrjun næsta árs. Dagur hefur ákveðið að taka við japanska landsliðinu í sumar.

Dagur: Kveðjustundin verður erfið
Segir að peningar hafi engin áhrif haft á ákvörðun hans. Hann hefði getað þénað meira annars staðar en í Japan.

Bob Hanning: Dagur breytti hugsunarhættinum í þýskum handbolta
Bob Hanning, varaforseti þýska handboltasambandsins, talar vel um Dag Sigurðsson í fréttinni um að íslenski þjálfarinn hafi ákveðið að hætta sem þjálfari þýska handboltalandsliðið eftir HM í Frakklandi.

Hanning: Staða okkar gagnvart Degi mjög þröng
Varaforseti þýska handknattleikssambandsins segir að það hafi verið lítið hægt að gera til að halda Degi Sigurðssyni.

Kretzschmar: Gerðum við nóg til að halda Degi?
Stefan Kretzschmar sér mjög á eftir Degi Sigurðssyni sem hefur ákveðið að hætta með þýska landsliðið.