Körfubolti

Marist-menn kaldir fyrir utan í tapi fyrir Rider

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristinn skoraði átta stig gegn Rider.
Kristinn skoraði átta stig gegn Rider. vísir/ernir
Kristinn Pálsson og félagar í Marist biðu lægri hlut fyrir Rider, 73-62, í háskólakörfuboltanum í Bandaríkjunum í nótt.

Kristinn var í byrjunarliði Marist og lék í 32 mínútur.

Njarðvíkingurinn skoraði átta stig og tók sex fráköst. Hann hitti úr öðru tveggja skota sinna inni í teig og tvö af fimm þriggja stiga skotum hans rötuðu rétta leið.

Þriggja stiga nýting Marist-manna var afleit í leiknum, eða 24%.

Marist hefur unnið fimm leiki í vetur og tapað ellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×