Jafntefli dugir nú strákunum okkar til að komast áfram í sextán liða úrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2017 14:29 Gabriel Teca skorar fyirr Angóla í leiknum í dag. Vísir/EPA
Túnis vann níu marka sigur á Angóla, 43-34, í lokaleik sínum í riðlakeppni HM í handbolta í fyrsta leik dagsins í B-riðlinum. Túnis hefði þurft að vinna sextán marka sigur til þess að vera ofar en Ísland endi liðin jöfn að stigum. Túnisbúar unnu leikinn hinsvegar aðeins með níu mörkum og því mun jafntefli á móti Makedóníu skila íslenska landsliðnu í sextán liða úrslitin. Ísland og Túnis væru þá með jafnmörg stig og með jafnan árangur í innbyrðisleikjum en Ísland væri með betri markatölu í öllum riðlinum. Túnis var sjö mörkum yfir í hálfleik, 23-16, en Angólamenn létu ekki keyra yfir sig í seinni hálfleiknum sem endaði „aðeins“ 20-18 fyrir Túnis. Gabriel Teca, línumaður Angóla skoraði 10 mörk úr 12 skotum í leiknum og var kosinn maður leiksins. Amine Bannour skoraði 10 mörk fyrir Túnis. Íslensku strákarnir eiga hinsvegar enn möguleika á þriðja sæti riðilsins með með því að vinna Makedóníu á eftir. Það er stefnan enda lykilatriði að sleppa við leik á móti Frökkum í sextán liða úrslitunum. Staðan er því alveg skýr. Vinni Ísland leikinn á móti Makedóníu þá endar liðið í 3. sæti í riðlinum og mætir Noregi í 16 liða úrslitin. Verði jafntefli í leiknum þá endar Ísland í 4. sæti í riðlinum og mætir Frakklandi í 16 liða úrslitum. Tapist leikurinn á móti Makedóníu þá spilar Ísland hinsvegar við Pólland í Forsetabikarnum. Rússland vann fjögurra marka sigur á Brasilíu, 28-24, á sama tíma og tryggði sér með því þriðja sætið í A-riðlinum. Brasilía endar í 4. sæti í A-riðli og mætir sigurvegara okkar riðils í sextán liða úrslitunum. Rússar mæta aftur á móti liðinu sem lendir í öðru sæti.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira