Örlög strákanna okkar í þeirra höndum eftir sigur Spánverja Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. janúar 2017 21:08 Makedóníumenn gáfu Spánverjum alvöru leik og eyddu vonandi mikilli orku. vísir/epa
Ísland getur endað í þriðja sæti B-riðils HM 2017 í handbolta. Til þess að það gerist þurfa strákarnir okkar að vinna Makedóníu í úrslitaleik um þriðja sætið annað kvöld. Þetta varð ljóst í kvöld þegar Spánn gerði okkar mönnum greiða með því að vinna Makedóníu, 29-25, í fjórðu umferð riðlakeppninnar. Sigur Spánverja var torsóttur en staðan var jöfn í hálfleik, 14-14. Makedónar voru enn þá inn í leiknum þegar tíu mínútur voru eftir en þá voru Spánverjar aðeins með eins marks forskot, 23-22. Spænska liðið var sterkara á endasprettinum og vann á endanum nokkuð öruggan sigur, 29-25. Hornamaðurinn Valero Rivera fór á kostum í kvöld og skoraði ellefu mörk úr fjórtán skotum en hann var lang markahæstur í liði Spánar. Eins og alltaf var Kiril Lazarov markahæstur Makedóníumanna en hann skoraði sex mörk úr tíu skotum. Með sigrinum komst Spánn aftur í efsta sæti B-riðils með átta stig eða fullt hús. Það er búið að vinna alla fjóra leiki sína og þarf aðeins jafntefli gegn Slóveníu í lokaumferðinni á morgun til að tryggja sér sigur í riðlinum. Makedónía er í þriðja sæti með fjögur stig, einu stigi meira en Ísland. Strákarnir okkar mæta Makedóníumönnum á morgun klukkan 17.45 í úrslitaleik um þriðja sætið þar sem Makedóníu nægir jafntefli. Sigur tryggir Íslandi þriðja sætið og leik á móti Noregi í 16 liða úrslitum. Ísland kemur til leiks á morgun eftir eins dags hvíld en Makedónía eyddi miklum kröftum í þennan erfiða leik gegn Spáni í kvöld.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira