
Arnór: Síðasti tapaði boltinn situr í mér
„Það vantaði þennan helvítis herslumun. Þeir eru klókari í lokin og núna erum við komnir í vonda stöðu. Tvö töp og eigum þrjá leiki sem við verðum að vinna og ætlum að gera það.“
Þó svo Arnór hafi spilað vel í kvöld þá gerði hann slæm mistök undir lok leiksins og það sat í reynsluboltanum að norðan.
„Þessi síðasti tapaði bolti situr mest í mér ef ég á að vera hreinskilinn. Við verðum bara að þurrka þetta út og undirbúa okkur almennilega fyrir Túnis.
„Við erum ógeðslega svekktir og ég ætla ekkert að þykjast vera jákvæður með þetta. Við erum hundsvekktir að tapa þessum leik. Við verðum að vinna Túnis á morgun.“
Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Tengdar fréttir

Vujovic: Framtíð íslenska liðsins er björt
"Ég veit ekki hvað skal segja,“ sagði þjálfari Slóvena, Veselin Vujovic, gjörsamlega búinn á því eftir hinn magnaða leik Íslands og Slóveníu í dag. Drengir Vujovic skriðu út úr höllinni með tvo punkta en það hefði ekki verið mjög ósanngjarnt ef Ísland hefði fengið annað stigið.

Guðmundur Hólmar: Við mætum bara dýrvitlausir á morgun
Guðmundur Hólmar Helgason var daufur í dálkinn eftir eins marks tap á móti Slóveníu á HM í handbolta í dag.

Einar Andri gerir upp leik Íslands: Frábær seinni hálfleikur en svekkjandi tap
Einar Andri Einarsson, þjálfari toppliðs Aftureldingar í Olís-deild karla í handbolta og sérfræðingur 365 um HM í handbolta, fer yfir leik Íslands og Slóveníu.

Arnór: Hefðum getað komist tveimur mörkum yfir en ég klúðraði dauðafæri
„Þetta er ótrúlega svekkjandi. Við áttum séns að komast tveimur mörkum yfir og ég til að mynda klúðraði þá dauðafæri,“ segir Arnór Þór Gunnarsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir svekkkjandi tap gegn Slóvenum á HM í handbolta í Frakklandi.

Kom alla leið frá Hólmavík á leikinn: „Okkur lýst ótrúlega vel á nýju strákana“
„Af hverju ættum við ekki að vera hér?," segir Svanhildur Jónsdóttir, hress stuðningsmaður íslenska landsliðsins, í Metz fyrir leik Íslands og Slóveníu á HM í handbolta sem fram fer í Frakklandi.

Umfjöllun: Ísland - Slóvenía 25-26 | Grátlegt tap í bardaga gegn Slóveníu
Strákarnir okkar urðu að sætta sig við tap í æsilegum slag gegn Slóveníu í dag. Lokatölur 25-26, Slóvenum í vil.

Forsetinn spáir tveggja marka sigri
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, er eins og rokkstjarna í íþróttahöllinni í Metz og hundeltur af fjölmiðlum.

Ólafur: Höfum ekki tíma til að svekkja okkur
„Við vorum ekkert langt frá þessu, vorum inn í leiknum allan tímann og þetta hefði getað dottið báðum megin,“ segir Ólafur Guðmundsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir svekkkjandi tap gegn Slóvenum á HM í handbolta í Frakklandi.