Körfubolti

Haukur Helgi frákasta- og stoðsendingahæstur í tapi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Helgi átti fínan leik þrátt fyrir tap.
Haukur Helgi átti fínan leik þrátt fyrir tap. vísir/ernir
Haukur Helgi Pálsson átti fínan leik þegar Rouen tapaði fyrir Aix-Maurienne, 95-84, í frönsku B-deildinni í körfubolta í kvöld.

Haukur Helgi var bæði frákasta- og stoðsendingahæstur í liði Rouen í kvöld. Hann tók sex fráköst og gaf fjórar stoðsendingar, auk þess að skora 14 stig.

Haukur Helgi hitti úr fjórum af 10 skotum sínum utan af velli og kláraði öll fimm vítin sín.

Þetta var fyrsti leikur Rouen eftir jólafrí en liðið vann síðustu tvo leiki sína á árinu 2016.

Rouen situr í átjánda og neðsta sæti deildarinnar með fjóra sigra og 10 töp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×