Túnis endaði í 19. sæti á HM Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. janúar 2017 19:45 vísir/getty
Túnis, sem var með Íslandi í riðli á HM 2017 í handbolta, vann Sádi-Arabíu, 39-30, í leiknum um 19. sætið í kvöld. Afríkuliðið endaði í fimmta sæti B-riðils með fjögur stig eins og Ísland en strákarnir okkar komust í 16 liða úrslitin þar sem þeir voru með betri markatölu en Túnisbúar. Ísland og Túnis skildu jöfn, 22-22, en Ísland vann aðeins einn leik á mótinu. Það var á móti Angóla sem endaði í 24. og neðsta sæti HM eins og greint var frá í dag. Túnis tapaði fyrir Póllandi í leiknum um 17.-20. sætið en Sádi-Arabía tapaði fyrir Argentínu. Pólverjar og Argentínumenn eigast nú við í leiknum um 17. sætið sem er einskonar úrslitaleikur Forsetabikarsins. Khaled Haj Youssef fór hamförum fyrir Túnis í dag og skoraði tólf mörk úr þrettán skotum og Saied Sobhi skoraði sex mörk úr sex skotum. Mohammed Alabas var markahæstur Sádanna með níu mörk úr fjórtán skotum. Markverðir Sádi-Arabíu vörðust nánast ekki neitt í leiknum. Þeir vörðu samtals fjögur skot og voru með níu prósent hlutfallsmarkvörslu.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Dagskráin í dag: Breiðablik getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira