Innlent

Annþór og Börkur sýknaðir í Hæstarétti

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Börkur Birgisson og Annþór Kristján Karlsson
Börkur Birgisson og Annþór Kristján Karlsson Vísir

Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson voru í dag sýknaðir fyrir Hæstarétti af ákæru um að hafa veitt fanganum Sigurði Hólm Sigurðssyni áverka í fangaklefa hans á Litla Hrauni sem drógu hann til dauða í maí árið 2012.

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Suðurlands frá því á síðasta ári þar sem það mikill vafi lék á sekt Annþórs Kristjáns og Barkar að héraðsdómur taldi ekki annað hægt að sýkna þá af ákæru um að hafa valdið áverkum sem leiddu til dauða Sigurðar Hólm Sigurðssonar. Var sýknudóminum áfrýjað til Hæstaréttar sem nú hefur dæmt í málinu.

Báðir neituðu þeir sök og könnuðust hvorugir við að hafa veitt Sigurði áverka en Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari fór fram á tólf ára fangelsisdóm yfir Annþóri og Berki.

Annþór og Börkur afplána nú sjö og sex ára fangelsisdóma sem féllu haustið 2013 fyrir grófa líkamsárás í janúar 2012.

Á öryggismyndavélum sjást Annþór og Börkur fara inn í klefa Sigurðar Hólm á Litla-Hrauni.Vísir/Anton Brink

Gerðu nákvæma eftirlíkingu af klefa Sigurðar á Litla-Hrauni

Sigurður Hólm fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni 17. maí árið 2012. Rúmu ári síðar voru Annþór og Börkur ákærðir fyrir stórfellda líkamsáras sem hefði leitt hann til dauða.

Rannsókn lögreglu á því hvað leiddi til dauða Sigurðar Hólm tók um ár enda var hún viðamikil. Þannig voru til að mynda þrír sérfræðingar, réttarmeinafræðingur og tveir sálfræðingar, fengnir til að skila skýrslum um málið. Lögðu sálfræðingar meðal annars mat á hegðun fanga á Litla-Hrauni sem þeir greindu út frá upptökum úr fangelsinu.

Lögreglan gerði nákvæma eftirlíkingu af klefanum á Litla-Hrauni þar sem Regina Preuss réttarmeinafræðingur og Þóra Steinunn Steffensen, dómskvaddur matsmaður í málinu, gerðu tilraunir til að komast að niðurstöðu um hvort Sigurður Hólm Sigurðsson hefði getað dottið á eitthvað inni í fangaklefanum sínum á Litla-Hrauni.

Málatilbúningur ákæruvaldsins byggði á því að Annþór og Börkur hafi veist að Sigurði í klefa hans með þeim afleiðingum að milta hans rofnaði. Hlaut Sigurður við það miklar innvortis blæðingar sem leiddu til dauða hans.

Í dómi héraðsdóms kom fram að ekki væri hægt að útiloka að einhver annar en Annþór eða Börkur hefðu geta veitt Sigurði þá áverka sem leiddu til dauða hans. Var þar nefndur til sögunnar ónefndur fangi sem dvaldi þrjár sekúndur einn í klefanum með Sigurði.

Samtals var hann í níu sekúndur í klefanum með Sigurði og taldi dómurinn það nóg til að ekki væri hægt að útiloka að hann hefði veitt Sigurði þennan áverka. Eftir það var Sigurður einn í klefa með ákærðu í 12 mínútur.

Þá útilokaði dómurinn ekki að fall í klefanum hafi orsakað áverkann. Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms en lesa má dóminn hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×