Segir óraunhæft að banna kjarnorkuvopn Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 27. mars 2017 23:40 Nikki Haley Vísir/Getty
Nikki Haley, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Sameinuðu þjóðunum, segir það ekki raunhæft að setja alfarið á bann við kjarnorkuvopnum um allan heim. Xi Jinping, forseti Kína, lýsti því yfir í ræðu hjá sameinuðu þjóðunum í Genf í janúar að kjarnorkuvopn ættu að vera alfarið bönnuð og þeim vopnum sem þegar eru til ætti að vera eytt. Meira en 120 lönd studdu tillögu að nýju banni við kjarnorkuvopnum. Nær 40 lönd tóku ekki þátt í viðræðunum, þar á meðal Bandaríkin, Bretland og Frakkland. Japan, eina landið í heiminum sem hefur mátt þola kjarnorkuárás, ákvað að taka ekki þátt í viðræðunum. „Það er ekkert sem ég vil frekar en að fjölskylda mín búi í heimi án kjarnorkuvopna. En við verðum að vera raunsæ,“ sagði Haley í samtali við blaðamenn í dag. „Er einhver sem trúir því að Norður Kórea muni samþykkja bann við kjarnorkuvopnum?“ Yfirvöld í Norður Kóreu hafa undanfarið verið iðin við edflaugatilraunir. Nú síðast á miðvikudag skutu yfirvöld þar í landi eldflaug á loft en hún sprakk skömmu eftir flugtak. Telja sérfræðingar að þrátt fyrir hina misheppnuðu tilraun muni það ekki koma til með að fá Kim Jong-Un af því yfirlýsta markmiði sínu að framleiða kjarnorkuvopn sem landið gæti beitt á Bandaríkin.
Norður-Kórea Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Um helmingur farþega komst lífs af Erlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira