Þýskaland er með fullt hús stiga þegar C-riðill undankeppni HM í Rússlandi 2018 er hálfnaður eftir öruggan 4-1 sigur á Azerbaijan í Baku í dag en Azerbaijan varð með því fyrsta liðið til að skora hjá Þýskalandi í undankeppninni.
Þýska liðið var mun sterkari aðilinn og var afar ógnandi frá fyrstu mínútu. Var því ekki hægt að segja annað en að forystan væri verðskulduð þegar Andre Schürrle kom Þýskalandi yfir á 19. mínútu en tíu mínútum síðar jöfnuðu heimamennn með marki frá Dimitrij Nazarov sem leikur með Aue í 2. deild í Þýskalandi.
Gestirnir frá Þýskalandi létu þetta ekki slá sig út af laginu og fimm mínútum síðar var búið að bæta við marki, Thomas Müller þar á ferðinni eftir undirbúning Schurrle. Mario Gomez bætti við þriðja marki Þjóðverja undir lok fyrri hálfleiks og innsiglaði í raun sigurinn um leið.
Schurrle var aftur á ferðinni tíu mínútum fyrir leikslok og gekk endanlega frá leiknum með öðru marki sínu og fjórða marki Þýskalands sem hefur áfram skorað að meðaltali fjögur mörk í leik í undankeppninni.
Í sama riðli fóru Tékkar til San Marino og gengu frá heimamönnum strax í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 5-0 fyrir gestina frá Tékklandi. Þeir slökuðu á klónni í seinni hálfleik og bættu ekki við forskotið fyrr en undir lok leiksins.
Þá vann Armenía 2-0 sigur á Kasakstan á heimavelli en Henrikh Mkhitaryan kom Armenum á bragðið eftir að Kasakar misstu mann af velli stuttu áður. Stuttu síðar bætti Aras Ozbiliz við öðru marki Armena og gerði út um leikinn.
Kasakar eru því áfram í botnsæti riðilsins en Armenar eiga enn veika von á að berjast um sæti á HM í Rússlandi en þeir eru með sex stig eftir fimm umferðir en hafa nú unnið tvo leiki í röð.
Úrslit dagsins:
Armenía 2-0 Kasakstan
Azerbaijan 1-4 Þýskaland
England 2-0 Litháen
San Marinó 0-6 Tékkland
Þýskaland áfram með fullt hús stiga | Sjáðu mörkin
Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mest lesið





„Að lokum var það betra liðið sem vann“
Körfubolti


Tatum með slitna hásin
Körfubolti

Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta
Íslenski boltinn

Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz
Enski boltinn

Þór komið áfram eftir öruggan sigur á Suðurlandi
Íslenski boltinn
Fleiri fréttir
