Fyrrverandi landsliðsþjálfarar sækjast eftir sæti í stjórn HSÍ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2017 20:15 Þorbergur er fyrrverandi landsliðsmaður og -þjálfari. vísir/akraborgin
Tveir fyrrverandi landsliðsþjálfarar sækjast eftir sæti í stjórn HSÍ en listi yfir frambjóðendur var í dag birtur á heimasíðu Handknattleiksambandsins. Þetta er þeir Þorbergur Aðalsteinsson og Ágúst Þór Jóhannsson sem íhugaði einnig að bjóða sig fram til formanns HSÍ. Ágúst lét þó framboð til stjórnar nægja. Þorbergur var þjálfari karlalandsliðsins á árunum 1990-95 en undir hans stjórn lenti Ísland í 4. sæti á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992. Þorbergur stýrði einnig íslenska landsliðinu á HM á heimavelli 1995. Þá lék hann 148 landsleiki og skoraði 369 mörk á sínum tíma. Ágúst þjálfaði kvennalandsliðið á árunum 2011-17 og fór með það á tvö stórmót; HM í Brasilíu 2011, þar sem Ísland komst í 16-liða úrslit, og EM í Serbíu 2012. Ágúst er í dag þjálfari karlaliðs KR. Davíð B. Gíslason, Hjalti Þór Hreinsson, Hjördís Guðmundsdóttir og Vigfús Þorsteinsson bjóða sig einnig fram til áframhaldandi setu í stjórn HSÍ. Magnús Karl Daníelsson býður sig einn fram til varastjórnar HSÍ. Þá er ljóst að Guðmundur B. Ólafsson situr áfram sem formaður en hann fékk ekkert mótframboð. Ársþing HSÍ fer fram laugardaginn 22. apríl en þar verður kosið um fjögur stjórnarsæti.
Íslenski handboltinn Mest lesið Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Fótbolti Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Handbolti „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Salah, Doc Zone og auðveld bráð Arsenal Sport Fleiri fréttir Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Toppkonur Íslands á HM í handbolta 2025 Kom færandi hendi eftir að hafa skotið ljósmyndarann niður Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Átta liða úrslitin á HM klár Ótrúlegir yfirburðir Noregs og Danir enduðu líka á toppnum Ýmir lenti í íslensku hakkavélinni og enn bíður Blær Skýrsla Ágústs: Ekki lengur reynslulausar Sjá meira