Kári ergir Bjarna með gróusögum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 5. apríl 2017 07:15 "Bjarni, ég hef ekki rakið þessar sögur vegna þess að ég telji að það sé líklegt að þær séu sannar heldur vegna þess að það hittast varla svo tveir eða fleiri Íslendingar í dag án þess að þær séu sagðar."
Ástæða þess að ég ergi þig með þessu bréfi er að þér virðist standa of mikið á sama, segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í pistli sem hann ritar í Fréttablaðinu í dag og beinir til Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra. Kári fer í pistli sínum yfir háværa orðróma um Bjarna er varða meðal annars sölu Landsbankans á Borgun, efnahagshrunið og fyrirtæki í eigu föður hans. Kári furðar sig á því að Bjarni hafi ekki reynt að leiðrétta þessar sögur, séu þær rangar. Þegar Bjarni hins vegar reyni að leiðrétta slíkar sögur sé mikilvægt að gera það af einlægni og þannig að það skiljist hvað hann sé að reyna að segja. „[Þ]ér virðist standa of mikið á sama, í það minnsta í samanburði við frelsishetjurnar sem við viljum bera forsætisráðherra okkar saman við. Þeir grétu með þjóð sinni þegar illa gekk í stað þess að reyna að græða á eymd hennar og þeir hlógu með henni í stað þess að hlæja að henni. Ég er ekki að halda því fram að þú gerir þetta en þögn þín um mikilvæg mál og yfirlýstur vilji þinn til þess að gleyma þeim býður svo sannarlega heim þeim misskilningi. Þú verður að taka þig saman í andlitinu og leiðrétta þetta vegna þess að þú ert í hjarta þínu hlýr maður og vilt ekki að þjóðin þín sé þjökuð af áhyggjum og angist sem á rætur sínar í misskilningi,“ segir Kári.Aðdáunarverð viðbrögð Kári segist jafnframt dást að viðbrögðum Bjarna við greinaskrifum sínum, en hann hefur margoft gagnrýnt Bjarna á opinberum vettvangi. „Ég hef hætt þig, gert grín að þér, ásakað þig um ljóta hluti og gert lítið úr þér og stundum hefur mér tekist ágætlega upp við þá iðju. Undantekningalaust hefur þú tekið þessu með bros á vör. Ég er handviss um að ef hlutverk okkar hefðu víxlast hefði mig skort bæði þá stærð og jafnvægi sem þarf til þess að halda reisn sem þú gerðir hins vegar eins og að drekka vatn.“ Varðandi sögusagnirnar þá bendir Kári í fyrsta lagi á kaup S-hópsins á um helmingshlut ríkisins í Búnaðarbankanum. Þjóðin hafi verið blekkt af hópnum og ef leiðtoga þjóðarinnar sé umhugað um líðan hennar þá verði hann að fordæma hópinn. Að minnsta kosti láta í ljós skoðun sína. Sumir gruni hann um áhugaskort á pólitík. „Þegar ég hef spurt þá sem gerst þykjast vita hvernig standi á þessum áhugaskorti þínum fæ ég bara eitt svar sem er að fjölskylda þín hafi verið á bólakafi í bankaskítnum og ef það yrði farið að moka þann flór, þá myndu ýmsir úr henni enda í fjóshaugnum,“ segir hann og heldur áfram: „Viðmælendur mínir benda í því sambandi á eignarhald fjölskyldu þinnar á Íslandsbanka og setu föðurbróður þíns og viðskiptafélaga til margra ára í stjórn hans og því hvernig ykkur tókst að selja ykkur út úr bankanum nokkrum klukkustundum áður en hann fór á hausinn. Ég stend í þeirri trú að þetta sé líklega allt rangt eða í það minnsta orðum aukið. Þú verður hins vegar að tjá þig til þess að kveða niður þennan róg og síðan að sjá til þess að við vitum að þú viljir að einkavæðingin verði rannsökuð í tætlur.“ Þá segir hann Bjarna ekki hafa gengið vasklega fram í að upplýsa um eignarhald á Arion banka, eftir kaup vogunarsjóða á tæplega 30 prósenta hluta hans. „Það eru meira að segja þeir sem halda því fram að það sé vegna þess að fjölskylda þín sé að undirbúa að kaupa sig inn í bankakerfið öðru sinni, til dæmis með því að láta Borgun kaupa Íslandsbanka með aðkomu lífeyrissjóða. Þetta verðurðu að kveða í kútinn sem fyrst.“ Því næst rekur Kári orðróm um aðkomu Bjarna að sölu Landsbankans að Borgun. Sagan segir að kaupendur hafi fengið hlutinn fyrir slikk og að frændfólk Bjarna hafi verið þeirra á meðal. „Þetta þarftu að leiðrétta ef þess er kostur.“ Fjórða og síðasta sagan varðar rútufyrirtæki á Keflavíkurflugvelli. „Fyrirtækið utan um þær ku vera í eigu föður þíns og systkina og segir sagan að það sé enginn einn aðili sem hafi notið meira undanþágu frá fullum virðisaukaskatti sem hlotnaðist rútufyrirtækjum heldur en einmitt þessi gullmoli fjölskyldu þinnar.“Íslendingar þjáist af skorti á geðlyfjum Nú þurfi Bjarni að taka sig taki og leiðrétta þessar sögur af einlægni. Þá segir Kári jafnframt: „Nú vil ég leggja áherslu á að ekkert af því sem ég hef sagt hér að ofan ber að skilja sem árás á Ólaf Ólafsson, þann vaska mann. Frá mínum bæjardyrum séð er hann er einfaldlega bísnissmaður sem fyrir hrun gerði það sem við sem þjóð og eftirlitsaðilar okkar létu hann komast upp með og er nú aftur kominn á kreik af því að við leyfum honum það sem hlýtur að teljast merki um einhvers konar brjálæði. Ég er því ósammála landlækni þegar hann segir að Íslendingar bryðji of mikið af geðlyfjum, ég held því fram að hegðun þeirra bendi til þess að þeir þjáist af skorti á þeim.“ Pistil Kára í heild sinni má lesa hér.
Tengdar fréttir Með rauðum penna Bjarni, mig hefur lengi langað til þess að tjá þér aðdáun mína á því hvernig þú hefur tekið því þegar ég hef dregið þig yfir naglabrettið í skrifum mínum. Ég hef hætt þig, gert grín að þér, ásakað þig um ljóta hluti og gert lítið úr þér og stundum hefur mér tekist ágætlega upp við þá iðju. Undantekningalaust hefur þú tekið þessu með bros á vör. 5. apríl 2017 07:00 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira
Með rauðum penna Bjarni, mig hefur lengi langað til þess að tjá þér aðdáun mína á því hvernig þú hefur tekið því þegar ég hef dregið þig yfir naglabrettið í skrifum mínum. Ég hef hætt þig, gert grín að þér, ásakað þig um ljóta hluti og gert lítið úr þér og stundum hefur mér tekist ágætlega upp við þá iðju. Undantekningalaust hefur þú tekið þessu með bros á vör. 5. apríl 2017 07:00