Átta mánuðir frá slysinu alvarlega og neyðarútgangspallurinn ósnertur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. apríl 2017 15:30 Svona var flóttaleiðin í morgun, miðvikudaginn 19. apríl. Vísir/Magnús Hlynur
Engar lagfæringar hafa verið gerðar á neyðarútgangspalli á 3. hæð Austurvegar 38 á Selfossi síðan þrítug kona féll þar til jarðar með þeim afleiðingum að hún lamaðist frá brjósti og niður. Forstjóri Vinnueftirlits ríkisins segir enga atvinnustarfsemi heimila í húsnæðinu þar til búið sé að laga pallinn. Það var mánudagskvöldið 22. ágúst í fyrra sem slysið varð. Fallið er hátt af þriðju hæðinni eða um sex metrar. Þótti kraftaverki líkast að konan, sem var verktaki og sinnti pistlaskrifum hjá Sunnlenska fréttablaðinu, lifði fallið af. Austurvegur 38. Aðeins er starfsemi á jarðhæðinni þessa dagana.Vísir/Magnús Hlynur Sjálfstæðismenn seldu Selfyssingar hafa margir hverjir undrast eð ekkert hafi verið gert í málunum og neyðarútgangurinn standi, nú átta mánuðum eftir slysið, óbreyttur. „Það halda allir að það hafi ekkert verið gert,“ segir Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins. Óbreytt ástand blasi við fólki sem virði húsið fyrir sér að utan. Það sé auðvitað hundleiðinlegt. Málið hafi aftur á móti verið á borði vinnueftirlitsins þar sem það var rannsakað. Niðurstaðan var skýr, þess efnis að húseigandinn yrði að ráðast í lagfæringar ef atvinnustarfsemi ætti að fá að fara fram í húsnæðinu. Vísir/Magnús Hlynur Hæðin var í eigu Sjálfstæðisfélagsins Óðins en í útleigu hjá Sunnlenska fréttablaðinu. Síðan slysið varð er Sunnlenska fréttablaðið flutt og tiltölulega nýlega var hæðin keypt af Austur 52 ehf. Hæðin hefur nú verið auð í marga mánuði. Ekki liggur fyrir hvaða starfsemi muni fara fram í húsinu þótt líklegt megi telja að þar verði gerðar íbúðir ef marka má viðskiptasögu nýs eiganda. Eyjólfur segir þó ljóst að engin starfsemi muni fara fram á hæðinni fyrr en lagfærðingar hafi verið gerðar. „Við höfum bannað atvinnustarfsemi,“ segir Eyjólfur. Verði vart við eitthvert skemmtanahald á hæðinni sé það hlutverk Eldvarnaeftirlitsins að stöðva það. Tengdur þekktustu „útfararstjórum“ landsins Nýr eigandi að húsnæðinu er Austur 52 ehf sem er í eigu Sigurðar H. Garðarssonar samkvæmt upplýsingum úr gagnagrunni Credit Info. Sigurður hefur verið töluvert í fréttum undanfarin ár með annars í tengslum við útfararstjóra, aðila sem leppa einkahlutafélög á leiðinni í þrot og koma þannig fyrri eigendum félaganna frá því að nafn verði tengt við gjaldþrotið. Sjá einnig: Kennitöluflakk er þjóðaríþrótt Íslendinga Fjallað var ítarlega um fyrirbærið útfararstjóra í fréttaskýringaþættinum Brestum á Stöð 2 fyrir tveimur árum. Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, ræddi meðal annars um dæmi sem hann hafði heyrt af kennitöluflakki sem sjá má að neðan. Samkvæmt heimildum Vísis hyggst Sigurður einnig kaupa 2. hæð hússins en til stendur að breyta húsnæðinu, sem er skráð sem skrifstofu- og atvinnuhúsnæði, í íbúðarhúsnæði. Sigurður var til umfjöllunar í Stundinni í febrúar vegna deilna við íbúa Reykjanesbæjar um byggingu þriggja hæða blokkar með 77 íbúðum. Á reitnum stendur nú skyndibitastaðurinn Hlöllabátar en Sigurður er einn eigenda skyndibitastaðarins.
Tengdar fréttir Hlöllabátum fórnað til að rýma fyrir Zimsenhúsinu? Minjavernd hf. hefur sett fram tillögur um nýjan stað fyrir Zimsen húsið úr Hafnarstræti. Ein tillagan er að hús Hlöllabáta á Ingólfstorgi verði rifið til að rýma fyrir Zimsen. Skelfilegt, segir eigandi Hlöllabáta. 14. desember 2006 06:15 Margdæmdir útfararstjórar: Þrjú félög gjaldþrota á hálfum mánuði Félög í eigu Egils Einarssonar, eigenda Hlöllabáta og fyrrum eiganda Players hafa öll verið tekin yfir nýlega af tveimur mönnum sem eiga langan brotaferil að baki. 7. maí 2015 14:14 Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Sjá meira
Hlöllabátum fórnað til að rýma fyrir Zimsenhúsinu? Minjavernd hf. hefur sett fram tillögur um nýjan stað fyrir Zimsen húsið úr Hafnarstræti. Ein tillagan er að hús Hlöllabáta á Ingólfstorgi verði rifið til að rýma fyrir Zimsen. Skelfilegt, segir eigandi Hlöllabáta. 14. desember 2006 06:15
Margdæmdir útfararstjórar: Þrjú félög gjaldþrota á hálfum mánuði Félög í eigu Egils Einarssonar, eigenda Hlöllabáta og fyrrum eiganda Players hafa öll verið tekin yfir nýlega af tveimur mönnum sem eiga langan brotaferil að baki. 7. maí 2015 14:14