Mourinho vill halda De Gea Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. maí 2017 17:00 Lokaleikurinn? De Gea í markinu gegn Tottenham. Það var hugsanlega hans síðasti leikur fyrir Man. Utd. vísir/getty
David de Gea mun ekki spila meira fyrir Man. Utd á þessari leiktíð og gæti verið búinn að spila sinn síðasta leik fyrir félagið. De Gea er sterklega orðaður við Real Madrid og Man. Utd sagt vera farið að huga að því að finna eftirmann hans. United á reyndar annan góðan markvörð í argentínska landsliðsmarkverðinum Sergio Romero. Sá stóð í marki United gegn Southampton í gær og mun verja mark United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Ajax. Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, hefur staðfest það. Mourinho hefur einnig staðfest að hinn tvítugi Portúgali Joel Castro Pereira mun standa í marki United í lokaleik liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Nú spyrja menn sig að því hvort De Gea muni spila aftur fyrir rauðu djöflana. „David er besti markvörður heims og að sjálfsögðu viljum við halda besta markverði heims,“ sagði Mourinho en hann virðist þó ekki óttast framtíðina þó svo De Gea fari. „Við erum með landsliðsmarkverði Argentínu og Spánar. Það eru tvö af bestu landsliðum heims. Þetta eru einstakir markverðir. Svo er portúgalski strákurinn mjög góður líka. Við erum í öruggum höndum.“ Þegar er byrjað að tala um mögulega arftaka De Gea og þar hefur nafn Kasper Schmeichel komið upp. Það myndi örugglega gleðja marga stuðningsmenn Man. Utd að sjá son Peter Schmeichel í marki United.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Fótbolti Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Körfubolti „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Fótbolti „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Handbolti Fleiri fréttir Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira