Durant og Westbrook aftur farnir að tala saman Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2017 15:30 Russell Westbrook og Kevin Durant. Vísir/Getty
Hin frægu vinslit Russell Westbrook og Kevin Durant hafa verið mikið á milli tannanna á áhugafólki um NBA-deildina í körfubolta á þessu tímabili eftir að Durant stakk af og samdi við Golden State Warriors. Durant skildi Russell Westbrook einan eftir hjá Oklahoma City Thunder en Russell svaraði því með sögulegu tímabili þar sem hann varð aðeins annar maður í sögunnar til að vera með þrennu að meðaltali í leik og einnig sá sem hefur náð flestum þrennum á einu tímabili. Kevin Durant hefur reyndar gert það fínt með Golden State Warriors og hann á góða möguleika á því að verða NBA-meistari í fyrsta sinn í næsta mánuði. Kendrick Perkins spilaði með þeim Durant og Westbrook í Oklahoma City Thunder frá 2011 til 2015 og hann segist hafa verið milligöngumaður í því að fá þá Durant og Westbrook til að sættast. ESPN segir frá. Það tókst hjá Perkins eftir að Russell Westbrook hafði slegið met Oscar Robertson í síðasta mánuði. Perkins sagði frá þessu í þættinum „Area 21“ á TNT. Að hans mati var körfuboltaheimurinn að gera alltof mikið úr þessu ósætti á milli Russell Westbrook og Kevin Durant. Hans markmið var því að fá gömlu liðsfélaga sína til að tala aftur saman. Durant lét hann seinna vita af því að hann og Russell Westbrook hafi átt gott spjall og þetta mál sé nú úr sögunni. Perkins trúir því líka að þeir Russell Westbrook og Kevin Durant verði liðsfélagar á nýjan leik í framtíðinni. Svo gæti farið að hans mati að Durant spili aftur með Thunder en Perkins er sannfærður um að Westbrook sé ekkert á förum þaðan.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira