Frábær innkoma Tryggva Snæs dugði ekki til gegn Kýpur | Myndir Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. maí 2017 15:01 Tryggvi Snær Hlinason í leiknum í dag. mynd/kkí
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði fyrir Kýpur, 71-57, í fyrsta leik liðsins á Smáþjóðaleikunum í dag. Kýpverjar eru með sterkt lið og ekki hjálpaði til að strákarnir þurftu að spila eftir ótrúlegt 46 tíma ferðalag. Kýpur var þrettán stigum yfir í hálfleik, 40-27, en lítið gekk hjá íslenska liðinu að skora. Byrjunarliðið setti aðeins 24 stig en bekkurinn skilaði 33 stigum. Tryggvi Snær Hlinason, leikmaður Þórs Akureyrar, átti einmitt stórgóða innkomu af bekknum en hann skoraði þrettán stig á 20 mínútum og tók að auki fjórtán fráköst. Hann var stigahæstur íslenska liðsins. Tryggvi hitti úr sex af sjö skotum sínum í teignum en brenndi af einu þriggja stiga skoti. Ekki þekktur fyrir að setja mörg svoleiðis. Hann tók sjö varnarfráköst og sjö sóknarfráköst. Jón Axel Guðmundsson skoraði átta stig fyrir íslenska liðið en hann hitti aðeins úr þremur af ellefu skotum sínum og þeir Kári Jónsson og Kristófer Acox sjö stig hvor. Íslenska liðið er meira og minna skipað leikmönnum U20 ára liðsins sem eru að fá tækifæri til að sýna sig en lykilmenn liðsins fóru ekki með á Smáþjóðaleikana. Strákarnir eru að berjast um síðustu lausu sætin í íslenska hópnum sem fer á EM í haust.
Íslenski körfuboltinn Tengdar fréttir Voru 46 klukkutíma á ferðalagi en eiga að keppa í dag Keppnisfólk Íslands í körfubolta og sundi lenti í ótrúlegum hremmingum á leið sinni á Smáþjóðaleikana. 30. maí 2017 08:30 Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira
Voru 46 klukkutíma á ferðalagi en eiga að keppa í dag Keppnisfólk Íslands í körfubolta og sundi lenti í ótrúlegum hremmingum á leið sinni á Smáþjóðaleikana. 30. maí 2017 08:30