Aron Einar: Þeir eru duglegir að henda sér niður
Íslandi hefur gengið illa gegn Króatíu og aldrei unnið þá hvítu og rauðu í landsleik.
„Við vitum hvernig þeir eru. Við höfum ekkert verið frábærir á móti þeim. Þeir hafa haldið okkur niðri í þessum þremur leikjum sem við höfum spilað við þá. Við höfum reynt að fara yfir það og hvernig þeir spila,“ sagði Aron Einar í samtali við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Landsliðsfyrirliðinn segir að íslensku strákarnir megi ekki láta Króatana fara í taugarnar á sér.
„Þeir eru klókir í sínum aðgerðum, duglegir að henda sér niður og pirra andstæðinginn. Það er bara eins og þeir eru. Við þurfum að vera búnir undir það og vera klókir á móti,“ sagði Aron Einar.
„Króatar eru góðir í öllum boltaíþróttum þótt þetta sé engin risaþjóð. Þetta er þétt og vel skipulagt lið sem veit nákvæmlega hvað það er að gera.“
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en þar er einnig rætt við Gylfa Þór Sigurðsson.
Tengdar fréttir

Jón Daði: Ekki til í víkingaklappið eftir tapleiki
Jón Daði Böðvarsson sló í gegn hjá stuðningsmönnum enska B-deildarliðsins Wolves í vetur.

Arnór Ingvi: Vitum allt um króatíska liðið
"Ég er í fínu standi og æft af fullu síðustu vikur. Meiðslin hafa auðvitað sett strik í reikninginn hjá mér í vetur,“ segir landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason í blíðunni í Laugardalnum.

Tveir af þekktustu króatísku landsliðsmönnunum þurfa að bera vitni í leiðindamáli
Luka Modric og Dejan Lovren eru á leiðinni til Íslands til að spila leik í undankeppni HM en þeir eru líka báðir á leiðinni í réttarsal þar sem þeir eru vitni í spillingarmáli í heimalandi sínu.

Jói Berg truflaði viðtal við Gylfa með Scooter
Stutt í grínið hjá landsliðsmönnunum okkar fyrir leikinn gegn Króatíu á sunnudag.

Hannes: Hugur í okkur að jafna sakirnar
"Það er hætt við því að það verði eitthvað sem komi á markið,“ segir markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson en hann mun væntanlega standa í ströngu í leiknum gegn Króatíu á sunnudag.

Gylfi: Eina sem Jói hefur gert af viti fyrir landsliðið í fjögur ár
Gummi Ben er með stjörnurnar í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í skemmtilegu spjalli í sérstökum hátíðarþætti af 1 á 1.

Aron Einar: Ég ætlaði að vera fyrstur til að fá treyjuna hjá Ronaldo
Í hátíðarútgáfunni af 1 á 1 með Gumma Ben, sem fer í loftið á morgun, þurfti Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði að svara fyrir treyjuvesenið hjá honum og Ronaldo á EM. Félagar hans í landsliðinu eru enn að hlæja að því.

Kominn tími á að taka þá
Emil Hallfreðsson segir að sjálfstraustið sé gott í íslenska liðinu fyrir leikinn gegn Króatíu. Miðjumaðurinn er ekki farinn að huga að heimferð eftir tæp tíu ár á Ítalíu og segir að hann verði alltaf með annan fótinn úti.

Ekki sjálfgefið að fá að spila fótbolta
Alfreð Finnbogason segist hafa lært mikið af því að hafa þurft að sitja á hliðarlínunni í hálft ár vegna meiðsla í vetur. Hann er nú heill heilsu og ætlar að láta til sín taka í landsleiknum gegn Króatíu á sunnudag.

Sverrir Ingi: Tony Adams er fínn gæi
Sverrir Ingi Ingason segir að síðasta tímabil hafi verið erfitt.

Raggi Sig: Hef spilað á móti hrokafyllri og leiðinlegri mönnum en Mandzukic
Það var létt yfir varnarmanninum Ragnari Sigurðssyni fyrir æfingu landsliðsins í dag þó svo hann viðurkenni að vera orðinn svolítið þreyttur á spurningum um skort á leikformi hjá sér.