Fótbolti

Jón Daði: Ekki til í víkingaklappið eftir tapleiki

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Víkingaklappið er vinsælt hjá stuðningsmönnum Wolves.
Víkingaklappið er vinsælt hjá stuðningsmönnum Wolves. Vísir/Getty
Jón Daði Böðvarsson er þokkalega sáttur við sitt fyrsta tímabil hjá enska B-deildarliðinu Wolves. Hann er nú að undirbúa sig fyrir landsleikinn gegn Króatíu á sunnudag og ræddi við Vísi fyrir æfingu í dag.

„Þetta er beggja blands. Það er hlið á tímabilinu sem var mjög jákvæð og svo önnur sem var miður jákvæð,“ segir Jón Daði en Wolves hafnaði í 15. sæti deildarinnar. Jón Daði kom við sögu í flestum leikjum - 22 sinnum sem byrjunarliðsmaður en 20 sinnum sem varamaður.

„Auðvitað hefði maður viljað gera meira. En þetta var lærdómsríkt og gott að hafa klárað sitt fyrsta tímabil á Englandi,“ segir hann.

Jón Daði í góðum gír með stuðningmsönnum Wolves.Vísir/Getty

Veist að þú ert að gera eitthvað rétt

Jón Daða kom til Wolves frá Kaiserslautern í Þýskalandi en þar áður lék hann í Noregi. Selfyssingnum var afar vel tekið af stuðningsmönnum Wolves, sem tóku víkingaklappið óspart til heiðurs íslenska landsliðsmanninum sínum.

„Það er alltaf gott að finna fyrir því að stuðningsmenn eru ánægðir með mann. Þá veistu að þú ert að gera eitthvað rétt og vilt gera enn betur,“ segir Jón Daði sem var ósjaldan beðinn um að taka víkingaklappið eftir leiki Wolves í vetur.



„Ég er alveg til í að gera það eftir góða sigurleiki. En stundum vilja þeir gera þetta eftir jafntefli og jafnvel töp. Það er ekki eitthvað sem maður er mikið til í að gera,“ segir Jón Daði í léttum dúr.

Á landsliðsæfingu.Vísir/Ernir



Engin skoðun á Bebe

Wolves er kominn með nýjan stjóra, Portúgalann Nuno Espirito Santo sem var áður hjá Porto, og segir Jón Daði að það gæti haft áhrif á stöðu hans eins og allra leikmanna hjá liðinu.

„Eins og er tel ég meiri líkur á því en minni að ég verði áfram hjá Wolves. Þetta kemur betur í ljós þegar maður mætir á svæðið og undirbúningstímabilið hefst,“ segir hann en nýlega bárust fregnir af því að Bebe gæti gengið í raðir Wolves og orðið nýr liðsfélagi Jóns Daða.

„Ég hef ekkert heyrt sjálfur af því og ekki myndað mér skoðun á því. Ef hann er leikmaður sem mun styrkja liðið er auðvitað hið besta mál að fá hann,“ segir Jón Daði.

Bebe var á sínum tíma keyptur til Manchester United eins og frægt er en spilar nú með Eibar á Spáni. Hann skoraði þrjú mörk í 20 deildarleikjum með liðinu á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×