Oscar í átta leikja bann fyrir að stofna til slagsmála Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júní 2017 23:00 Oscar missti stjórn á skapi sínu og kom slagsmálum af stað. vísir/afp
Oscar, fyrrverandi leikmaður Chelsea, hefur verið dæmdur í átta leikja bann fyrir að stofna til slagsmála í leik Shanghai SIPG og Guangzhou R&F í kínversku ofurdeildinni í fótbolta á sunnudaginn. Oscar þrumaði þá boltanum í tvo leikmenn Guangzhou. Í kjölfarið brutust út slagsmál. Einn leikmaður úr hvoru liði fékk reisupassann en Oscar slapp með skrekkinn. Hann fékk hins vegar sína refsingu í dag. Auk þess að vera dæmdur í átta leikja bann var Oscar dæmdur til að greiða rúmlega fjögurra milljóna króna sekt. Leikmennirnir sem voru reknir út af í leiknum á sunnudaginn, Fu Huan hjá Shanghai og Li Zixiang hjá Guangzhou, fengu sex og fimm leikja bann. Þá fékk Guangzhou-maðurinn Chen Zhizhao, sem hrinti Oscar, sjö leikja bann. Félagaskipti Oscars frá Chelsea til Shanghai í janúar vöktu mikla athygli enda Brasilíumaðurinn á besta aldri sem fótboltamaður. Shanghai borgaði 60 milljónir punda fyrir Oscar sem ku fá 400.000 pund í vikulaun hjá félaginu. Oscar hefur leikið alla 13 leiki Shanghai á tímabilinu. Liðið er í 2. sæti kínversku ofurdeildarinnar með 30 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Guangzhou.
Fótbolti Tengdar fréttir Oscar kom slagsmálum af stað í Kína | Myndband Brasilíumaðurinn gerði allt vitlaust og tvö rauð spjöld fóru á loft. 19. júní 2017 09:45 Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Enski boltinn Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Fleiri fréttir Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Sjá meira
Oscar kom slagsmálum af stað í Kína | Myndband Brasilíumaðurinn gerði allt vitlaust og tvö rauð spjöld fóru á loft. 19. júní 2017 09:45