Martin samdi við Chalons-Reims Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. júní 2017 12:11 Martin Hermannsson er kominn í A-deildina. vísir/bára dröfn
Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, er búinn að semja við franska A-deildarliðið Chalons-Reims en þetta kemur fram á heimasíðu franska félagsins. Martin kemur til Chalons-Reims frá Charleville í B-deildinni þar sem hann spilaði stórkostlega á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku eftir háskólaboltann í Bandaríkjunum. Vesturbæingurinn var besti leikmaður Charleville sem komst nokkuð óvænt í úrslitakeppnina en hann skoraði 17,2 stig að meðaltali í leik og var annar í kjörinu á besta leikmanni deildarinnar. Chalons-Reims hafnaði í 16. sæti af 18 liðum á síðustu leiktíð og slapp naumlega við fall en þetta nýja lið, stofnað árið 2010 eftir sameiningu tveggja félaga, hefur aðsetur bæði í borgunum Reims og Chalons-en-Champagne. Martin fylgir þjálfara sínum Cédric Heitz til Chalons-Reims en Frakkinn sem hefur náð svo fínum árangri með Charleville skrifaði undir hjá félaginu fyrr í sumar. „Ég skrifaði bara undir um miðnætti í gærkvöldi. Þetta hefur verið í vinnslu en var klárað í gær. Hann [þjálfarinn] suðaði endalaust í mér eftir að hann tók við og vildi að ég kæmi með honum. Ég var búinn að skoða aðra valmögulega þar sem margt stórt og spennandi var í boði en ég held að þetta sé rett skref að elta hann,“ segir Martin í viðtali við mbl.is um vistaskiptin.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Í beinni: KA - Víkingur | Á sama tíma að ári Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira