Jackson gæti látið lettneska einhyrninginn fara frá Knicks | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. júní 2017 10:30 Kristaps Porzingis hefur verið frábær síðan hann kom inn í NBA-deildina. vísir/getty
Phil Jackson, framkvæmdastjóri New York Knicks, er að gera alla stuðningsmenn félagsins brjálaða enn og aftur en nú íhugar hann alvarlega að láta lettneska kraftframherjann Kristaps Porzingis fara. Jackson viðurkenndi í viðtali á MSG sjónvarpsstöðinni í gærkvöldi að Knicks er að hlusta á tilboð í leikmanninn sem hefur farið á kostum síðan hann var valinn fjórði í nýliðavalinu árið 2015. „Við erum að fá símtöl. Eins mikið og við kunnum að meta hann og það sem hann hefur gert fyrir liðið fara menn að spá í hlutunum þegar leikmaður mætir ekki á fund,“ segir Jackson en leikmannamarkaðurinn í NBA er á fullu núna rétt fyrir nýliðavalið. „Við höfum fengið símtöl og við hlustum á tilboð en það hefur ekkert komið inn sem heillar okkur. Eins mikið og við elskum þennan strák verðum við að gera það sem er gott fyrir félagið okkar.“ Porzingis er einstakur leikmaður því þrátt fyrir að vera 220 cm hár getur hann hreyft sig betur en margir risar í deildinni og skotið. Þá kom hann inn í deildina með mikla reynslu þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall í dag. Hvað í ósköpunum gæti verið betra fyrir Knicks en að halda Lettanum? Hvað er Jackson að spá? „Framtíðin. Hvað gæti þetta gefið okkur? Kannski tvo byrjunarliðsmenn og valrétt í nýliðavalinu. Kannski eitthvað meira en það. Þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða. Við vitum að Porzingis er einhyrningur. Hann er einstakur,“ segir Phil Jackson.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira