Sérfræðingar efa að eldflaugavopna- og kjarnorkuáætlanir Norður-Kóreu hafi náð þeim hæðum sem yfirvöld þar í landi segja, en ljóst er að miklum árangri hefur verið náð.
Nær mögulega til Alaska
Norður-Kórea tilkynnti nú í morgun að tilraunaskot langdrægar eldflaugar hefði tekist. Því var haldið fram í ríkissjónvarpi Norður-Kóreu að Hwasong-14 eldflaugin gæti hitt skotmörk „hvar sem er í heiminum“, sem þykir mjög hæpið.

Yfirlýst markmið Norður-Kóreu er að þróa langdrægar eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn til Bandaríkjanna. Það fæli í sér minnst átta þúsund kílómetra ferðalag. Auk þess þyrfti ríkið að þróa kjarnorkuvopn sem eru í senn kröftug og smá, svo hægt sé að koma þeim fyrir í eldflaugum. Þá þyrftu sprengjurnar að vera verulega harðgerðar til þess að þola hitann, titringinn og álagið sem fylgir því að fljúga aftur inn í gufuhvolfið.
Norður-Kórea segir að þeim hafi tekist að þróa slík kjarnorkuvopn, en það hefur ekki verið staðfest og þykir ótrúverðugt.
Í samtali við BBC segir eðlisfræðingurinn David Wright að ef fregnir af flugi eldflaugarinnar séu réttar ætti hún að geta farið um 6.700 kílómetra. Þannig gæti Norður-Kóreu skotið kjarnorkuvopni til Alaska. Hwasong-14 eldflaugin myndi ekki drífa til Hawaii eða nokkurra annarra ríkja í Bandaríkjunum.
Moon hefur kallað eftir neyðarfundi hjá Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt frétt Yonhap fréttaveitunnar í Suður-Kóreu, telja embættismenn að þvinganir gegn Norður-Kóreu verði hertar enn fremur.
North Korea has just launched another missile. Does this guy have anything better to do with his life? Hard to believe that South Korea.....
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) July 4, 2017
....and Japan will put up with this much longer. Perhaps China will put a heavy move on North Korea and end this nonsense once and for all!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) July 4, 2017
Donald Trump tísti um eldflaugaskotið í nótt. Þar spurði hann hvort að Kim Jong-un hefði ekkert betra að gera við líf sitt og hvatti hann Kínverja til að beita sér af afli gegn vopnaætlunum Norður-Kóreu. Trump hefur áður biðlað til Kínverja að beita Pyongyang þrýstingi en það hefur ekki borið árangur.
Stjórnvöld í Washington hafa lýst yfir vonbrigðum með Kína og nú í síðustu viku beittu stjórnvöld þar þvingunum gegn kínverskum banka og meintra tengsla hans við Norður-Kóreu.
Trump ræddi við Xi Jinping, forseta Kína, í síma á sunnudaginn. Fjölmiðlar í Kína segja Xi hafa varað Trump við því að samband ríkjanna hafi beðið hnekki. Þá segir New York Times að Trump hafi tilkynnt kínverska forsetanum að Bandaríkin gætu gripið til einhliða aðgerða gegn Norður-Kóreu.
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna virðist, samkvæmt AP fréttaveitunni, hafa skilgreint eldflaugin sem meðaldræga og hafa ekki staðfest að um langdræga flaug hafi verið að ræða.
#NorthKorea says its #icbm will 'end the US nuclear war threat and blackmail" https://t.co/lBNDEeLDFh pic.twitter.com/dM9PilEv3u
— AFP news agency (@AFP) July 4, 2017