Dönsku stelpurnar enduðu 24 ára sigurgöngu þýska kvennalandsins í knattspyrnu, en Danir unnu 2-1 sigur í leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópumóts kvenna í Hollandi.
Þetta er fyrsta tap Þjóðverja í úrslitakeppni síðan 1993, en liðið hefur unnið sex Evrópumót í röð. Ótrúlegur árangur.
Leikurinn átti að fara fram í gærkvöldi, en vegna mikillar rigningu í gær varð að fresta honum. Hann var því spilaður í Rotterdam í morgun.
Isabel Kerschowski kom Þjóðverjum yfir á þriðju mínútu eftir klaufaleg mistök markvarðar Dana. Staðan 1-0 í hálfleik.
Nadia Nadim jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks með skalla og Theresa Nielsen reydist svo hetjan með öðru skallamarki sjö mínútum fyrir leikslok.
Ótrúlegur sigur Dana sem fögnuðu gífurlega í leikslok og eru komin í undanúrslit þar sem liðið mætir annað hvort Austurríki eða Spáni.
Dönsku stelpurnar enduðu 24 ára sigurgöngu Þjóðverja
