KALDA var einnig nýlega tekið inn í verslun Browns í London og vann Katrín sérstaka skólínu í tengslum við kynninguna. Einnig sýnir KALDA nýja línu á tískuvikunum í september, í New York, London og París.
Katrín kynnir nýja línu í dag, en það er haust- og vetrarlínan 2017. Katrín segir að innblástur línunnar upphaflega hafi verið úr myndinni Paris-Texas, en sú kvikmynd er frá árinu 1984. Stíll KALDA er einkennandi og heldur hún fast í kjarnann. Hún er dugleg að blanda saman efnum eins og fiskiroði og loði, og reynir hún að ögra fólki fagurfræðilega séð. KALDA er fyrir þær sem vilja áhugaverða skó sem ekki hægt er að fá hvar sem er. Það er ekki skrítið hvað KALDA er að fá mikla athygli, því hún hefur komið sem ferskur andblær inn í tískuheiminn.
Katrín kynnir nýja línu KALDA í dag á milli 16:00-18:00 í verslun Yeoman á Skólavörðustíg.



