Klopp um fyrsta skiptið sitt: Vonandi stöndum við okkur betur í kvöld en ég gerði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2017 17:30 Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er mættur til heimalandsins síns Þýskalands þar sem Liverpool mun í kvöld spila fyrri leikinn sinn á móti Hoffenheim í umspili um sæti í Meistaradeildinni. Liverpool gerði vel í að tryggja sér fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni en þarf að slá út Hoffenheim til að komast í Meistaradeildina í vetur. Klopp var alveg tilbúinn að slá á létta strengi á blaðamannafundi fyrir leikinn og það var einkum eitt svar sem vakti mikla kátínu meðal fjölmarga blaðamanna sem voru mættir til að spyrja hann spjörunum úr. Blaðamaður FourFourTwo sagði síðan frá þessu spaugilega atviki inn á Twitter:Jürgen Klopp jokes about losing his virginity in the build-up to tonight's match. pic.twitter.com/mw1psXgQ5H — FourFourTweet (@FourFourTweet) August 15, 2017 Fréttamaður: Herra Klopp, manstu þú eftir fyrsta skiptinu þínu? (Hún var að meina fyrsta leikinn í Meistaradeildinni en nefndi það ekki). Klopp: (Hissa en með glotti) Manstu þú eftir þínu fyrsta skipti? Auðvitað man ég eftir því en vanalega er ég ekki að tala opinberlega um fyrsta skiptið mitt en ég vona samt að við stöndum okkur betur á morgun en ég gerði. Leikur Hoffenheim og Liverpool hefst klukkan 18.45 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.Jürgen Klopp talar við fjölmiðlamenn.Vísir/Getty
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira