Enski boltinn

Áttu í sátta­viðræðum við ensku úr­vals­deildina

Aron Guðmundsson skrifar
Khaldoon Al Mubarak með Pep Guardiola, þáverandi knattspyrnustjóra Manchester City eftir að félagið hafði tryggt sér Englandsmeistaratitilinn í fótbolta árið 2024.
Khaldoon Al Mubarak með Pep Guardiola, þáverandi knattspyrnustjóra Manchester City eftir að félagið hafði tryggt sér Englandsmeistaratitilinn í fótbolta árið 2024. Vísir/Getty

Tilraun Manchester City til að ná sátt við ensku úrvalsdeildina, í máli sem deildin höfðaði gegn félaginu fyrir umfangsmikil brot á fjárhagsreglum, fór út um þúfur.

Það er Bloomberg sem greinir frá og er þetta í fyrsta sinn sem í ljós kemur að Manchester City hafi átt í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina. Á þetta að hafa gerst fyrir einhverju síðan.

Samkvæmt Bloomberg var þetta leið Manchester City til að reyna milda þær þungu refsingar sem félagið gæti átt yfir höfði sér. Viðræðurnar fóru þó út um þúfur áður en samkomulag náðist.

Viðræðurnar eru sagðar hafa farið fram áður en félagið varð fyrir verulegu bakslagi í málinu en nú hefur sekt Manchester City í 114 ákærum af 115 verið staðfest.

Samningaviðræðurnar, sem ekki hefur verði greint frá áður, sigldu fljótt í strand og Manchester City heldur enn fram sakleysi sínu og hefur áfrýjað dómnum en ljóst þykir að félagið geti átt yfir höfði sér afar þunga refsingu.

Brot Manchester City á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar voru ýmis konar.

Óháð nefnd ensku úrvalsdeildarinnar komst að því að Manchester City hafi á níu ára tímabili frá 2009/10 til 2017/18:

  • Gert „sýndarsamninga“ (e. sham agreements) (sem gáfu ranga mynd af raunverulegu samkomulagi milli aðila) við fjölda viðskiptafélaga sinna, auk þess að reiða sig á „sýndarsamninga“ við aðra, til að blása upp tekjur félagsins á fölskum forsendum og draga úr kostnaði þess.
  • Félagið skilaði inn röngum reikningum og leyndi raunverulegri fjárhagsstöðu sinni fyrir endurskoðendum sínum og eftirlitsaðilum knattspyrnunnar.
  • Það braut verulega gegn eyðslumörkum bæði ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA.
  • Við rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar braut Manchester City ítrekað gegn skyldum sínum um samvinnu og fyllsta trúnað gagnvart deildinni (þrjú af fjórum meintum brotum voru staðfest).

Manchester City spilar sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni eftir að dómur var kveðinn upp á Anfield á sunnudaginn þegar liðið heimsækir Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×