Forsetinn virtist nota fjöldafundinn til að fá útrás fyrir reiði sem safnast hefur upp hjá honum undanfarna daga og vikur. Bar hann sig sérstaklega aumlega yfir hvernig fjölmiðlar hefðu fjallað um viðbrögð hans samkomu nýnasista og annarra hvítra þjóðernissinna í Charlottesville fyrir einni og hálfri viku.
Sakaði hann fjölmiðla, sem hann kallaði „sjúkt fólk“, um að neita að segja satt og rétt frá viðbrögðum sínum en þau voru harðlega gagnrýnd bæði af demókrötum og repúblikönum. Gekk hann jafnvel svo langt að kenna fjölmiðlum um ofbeldið í Charlottesville. Kona á fertugsaldri lést þegar hvítur þjóðernissinni ók niður mótmælendur í göngugötu.
Sagðist forsetinn vilja sýna stuðningsmönnum sýnum „hversu djöfulli óheiðarlegt þetta fólk er“ skömmu áður en hann las upp upphaflega yfirlýsingu sína um Charlottesville. Hann sleppti þó þeim hluta yfirlýsingarinnar þar sem hann kenndi bæði hvítu þjóðernisöfgamönnunum og mótmælendum þeirra um ofbeldið.
„Það er kominn tími til að afhjúpa blekkingar spilltu fjölmiðlanna og að standa uppi í hárinu á fjölmiðlum vegna hlutverks þeirra í að ala á sundrungu og já, á meðan ég man, þeir eru að reyna að taka söguna okkar og arfleið frá okkur,“ sagði Trump og óð úr einu í annað á sinn einkennandi hátt.

Trump rifjaði jafnframt upp vinsælasta stef sitt úr kosningabaráttunni um múrinn sem hann vill reisa á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Hótaði hann láta rekstur alríkisstjórnarinnar stöðvast ef Bandaríkjaþing samþykkir ekki fjárveitingar til landamæramúrsins, að því er segir í umfjöllun Washington Post um fundinn.
„Þó að við þurfum að loka ríkisstjórninni okkar þá ætlum við að byggja þennan vegg,“ sagði Trump en stuðningsmenn hans kyrjuðu „Byggðu vegginn!“ líkt og þeir gerðu á fjöldafundum í kosningabaráttunni.
Fríverslunarsamningur Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó, NAFTA, á heldur ekki mikla framtíð fyrir sér ef marka má orð Trump á fundinum í gær. Fulltrúar ríkjanna þriggja hafa undirbúið viðræður um framtíð samningsins undanfarið.
„Persónulega held ég að við getum ekki náð samkomulagi. Ég hugsa að við endum á því að rifta NAFTA á einhverjum tímapunkti,“ sagði forsetinn.

Fjöldi mótmælenda kom saman fyrir utan ráðstefnuhöllina í Phoenix í Arizona þar sem fjöldafundur Trump fór fram. The Guardian segir að lögreglumenn hafi beitt reyksprengjum og táragasi á mótmælendurna eftir að þeir hentu plastflöskum.
Einn stuðningsmanna Trump er sagður hafa hrópað að mótmælendum að John McCain, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins frá Arizona, þyrfti að „drepast strax“. McCain var einn þriggja þingmanna flokksins í þingdeildinni sem greiddi atkvæði gegn afnámi Obamacare-sjúkratryggingalaganna.
I wouldn't wish seeing this about your own father on my worst enemy. May God help these people who inflict such cruelty in the world. https://t.co/2wV3yFI1Hn
— Meghan McCain (@MeghanMcCain) August 23, 2017

Gaf Trump jafnframt sterklega í skyn að hann myndi beita valdi sínu til að náða Joe Arpaio, sýslumann í Maricopa-sýslu í Arizona. Arpaio hlaut dóm fyrir að óhlýðnast beinni tilskipun dómstóls um að fulltrúar hans skyldu hætta að stoppa innflytjendur á götum úti, að því er segir í frétt The Guardian.
„Var Joe skerfari sakfelldur fyrir að vinna vinnuna sína?“ spurði Trump salinn.
„Hann hefði átt að fá kviðdóm. Ég ætla að spá svolitlu. Ég held að það verði allt í lagi með hann,“ sagði Trump sem hafði áður sagt Fox News að hann væri að íhuga að náða Arpaio.

Fox News og þáttastjórnandinn Sean Hannity voru að mati forsetans heiðvirt og heiðarlegt fólk. Hannity hefur sérstaklega verið einarður stuðningsmaður Trump undanfarin misseri.
Varði hann einnig sérstaklega Jeffrey Lord, stuðningsmann Trump, sem CNN rak sem álitsgjafa eftir að hann notaði kveðju nasista í rifrildi á Twitter á dögunum.
Rangfærslur Trump eru þekktar af endemum og nokkrar slíkar fengu að falla á fjöldafundinum í gær. Þegar forsetinn ræddi um það sem hefur verið kallað „hrein kol“ virtist hann ekki skilja hvernig þau virkuðu.
„Þeir taka upp kol, þeir ætla að hreinsa þau,“ sagði Trump.
Talað hefur verið um „hrein kol“ í tengslum við aðferðir sem eru notaðar til að sía út eituefni og jafnvel koltvísýring úr reyknum sem myndast við bruna kolanna.