Lífsstílsbloggarar selja fötin sín til styrktar Bleiku slaufunni Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 27. september 2017 12:00 Bloggararnir á Glam.is ætla að styrkja árlega eitthvað gott málefni. „
Þetta verður allt hræódýrt,“ segir Ásdís Guðný Pétursdóttir í samtali við Vísi. Stelpurnar sem skrifa á bloggsíðuna Glam.is standa nú fyrir söfnun fyrir Bleiku slaufuna. Ásdís er einn stofnanda síðunnar en hún segir að þeim sé mjög mikilvægt að styrkja flott málefni. „Við verðum í Kolaportinu 8.október að selja flíkur og allt sem við fáum fyrir þær setjum við í sjóðinn.“ Vinkonurnar ætla að styrkja eitt málefni á ári en síðan var stofnuð í febrúar á þessu ári. Þær eru með söfnunarreikning en svo bætist inn á hann allt það sem safnast í Kolaportinu. Fyrir hverja 10.000 krónur sem safnast ætla þær að takast á við skemmtilega áskorun „Við ákváðum að hafa þessar áskoranir svo fólk myndi vilja styrkja okkur, þetta gerir söfnunina meira spennandi.“Ásdís Guðný Pétursdóttir er ein þeirra sem ætlar að selja fötin sín í Kolaportinu til styrktar Bleiku slaufunniAðsentÁsdís segir að ótrúlega margir ætli að styrkja söfnunina og mæta í Kolaportið. Fólkið í kringum þær sé líka duglegt að senda þeim hugmyndir af áskorunum. „Krabbameinsfélagið lætur okkur líka fá slaufur og borða til þess að selja í básnum.“ Ásdís lýsir síðunni þeirra sem „Mömmu-lífstílsbloggi“ en með Ásdísi blogga þær Andrea Ísleifs, Emma Soffía, Karen Helga, Selma Blöndal og Sunna Ýr. Þær taka allar þátt í söfnuninni í Kolaportinu. Þær stofnuðu styrktarreikning á kennitölu Ásdísar fyrir þá sem vilja leggja söfnuninni lið en komast ekki á fatasöluna í Kolaportinu. Kennitalan er 010793-3009 og reikningsnúmerið 0370-13-001506.
Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“