Bandaríski háskólakörfuboltinn í vandræðum eftir rannsókn FBI Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. september 2017 07:00 Auburn er einn af skólanum sem gætu verið í vandræðum hjá NCAA. Vísir/Getty
Bandaríkjamenn eru með mjög strangar reglur í háskólakörfuboltanum til að koma í veg fyrir allar greiðslur til íþróttamanna en bestu leikmenn skólaliðanna eru aðeins ári frá því að komast í milljóna samninga í NBA. Nú er hinsvegar komið upp risastórt mútumál þar sem bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur farið fyrir rannsókn sem hefur verið í gangi í þrjú ár. ESPN segir frá. Þar er að koma í ljós að margir af virtustu skólunum í bandaríska háskólakörfuboltanum hafa orðið uppvís um reyna að svindla á reglunum og koma stórum peningaupphæðum framhjá kerfinu og til bæði aðstoðarþjálfara og leikmanna. Aðstoðarþjálfararnir Chuck Person (Auburn), Emanuel Richardson (Arizona), Lamont Evans (Oklahoma State) og Tony Bland (USC) eru meðal þeirra tíu sem eru ákærðir af FBI í tengslum við þetta spillingarmál. Þessir fjórir aðstoðarþjálfarar eru ákærðir fyrir að taka við mútum til að stýra leikmönnum sinna skóla til ákveðna umboðsmanna og fjármálaráðgjafa. Annar hluti ákærunnar snýst um það að James Gatto, sem er yfirmaður hjá Adidas, hafi komið stórum greiðslum til þriggja leikmanna gegn því að þeir hafi samþykkt að spila fyrir ákveðna skóla. Adidas er ekki nefnt á nafn í ákærunni heldur aðeins talað um ónefndan íþróttavöruframleiðanda en það liggur í augum uppi að það sér fyrirtæki Gatto. Bandarískir fjölmiðlar hafa líka nefnt til University of Louisville sem skóla í tengslum við mál James Gatto. Skólarnir sem um ræðir eiga ekki aðeins hættu á því að starfsmenn þeirra verði sóttir til saka af bandarísku alríkislögreglunni heldur eiga skólarnir einnig á hættu að vera settir í keppnisbann. Bandaríska alríkislögreglan er enn með rannsóknina í fullum gangi og menn þar á bæ hafa óskað eftir upplýsingum frá fólki sem veit eitthvað um málið. Þar gæti ýmislegt komið fram í dagsljósið. Það má búast við frekari fréttum af þessum málum sem og viðbrögðum NCAA á næstunni en keppnistímabilið í bandaríska háskólakörfuboltanum hefst í næsta mánuði.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira